Norðurlandamót Matthías og Gustur á toppnum í A-flokki ungmenna

  • 9. ágúst 2024
  • Fréttir
íslensku knaparnir stóðu sig frábærlega

Áfram heldur keppni á Norðurlandamótinu í Herning en nú var að ljúka forkeppni í A-flokki ungmenna. Alls tóku 12 keppendur þátt og Ísland átti þrjá fulltrúa í þeirri grein, sem allir stóðu sig vel og ríða til A-úrslita á sunnudaginn. Það voru þeir Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Sigurður Baldur Ríkharðsson og Matthías Sigurðsson.

Efstur að lokinni forkeppni er Matthías Sigurðsson á Gusti frá Stóra-Vatnsskarði með einkunnina 8,668. Gustur er 1.verðlauna stóðhestur undan Spuna frá Vesturkoti og Lukku frá Stóra-Vatnsskarði.

Guðmar Hólm Ísólfsson Línder er í öðru sæti á á Sólbjarti frá Akureyri, hlutu þeir einkunnina 8,492. Sólbjartur er 10.vetra gamall geldingur undan Kjarki frá Skriðu og Sóldísi frá Akureyri.

Sigurður Baldur Ríkharðsson keppti á Júní frá Brúnum, sem Benjamín Sandur Ingólfsson keppti á fyrir Íslandshönd á síðasta heimsmeistaramóti. Hlutu þeir 8,396 í einkunn fjórða sæti og þátttökurétt í A-úrslitum.

Niðurstöður úr forkeppni í A-flokki ungmenna

# Knapi Hestur Einkunn
1 Matthías Sigurdsson Gustur frá Stóra-Vatnsskarði 8.668
2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Sólbjartur frá Akureyri 8.492
3 Elsa Johannesen Prins frá Blönduósi 8.428
4 Ester Dahl á Heygum Dalvar frá Dalbæ II 8.396
4 Sigurður Baldur Ríkharðsson Júní frá Brúnum 8.396
6 Kajsa Wennerström Öðlingur frá Hárlaugsstöðum 2 8.322
7 Astrid Normann Andersen Kolgrímur frá Akureyri 8.288
8 Malin Brandsgård Skaug Humall frá Langholtsparti 8.220
9 Grete Fostervoll Flemmen Sörli frá Arabæ 7.954
10 Linnéa Jansson Felix frá Gafli 7.420
11 Alice Ekman Karri frá Gauksmýri 7.324
12 Ida Brunsgaard Pedersen Una frá Ánabrekku 6.998

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link