Norðurlandamót Matthías og Gustur unnu A-flokk ungmenna

  • 11. ágúst 2024
  • Fréttir

Matthías og Gustur frá Stóra-Vatnsskarði í forkeppni í A-flokki. Ljósmynd: Anja Mogensen

Gull og silfur til Íslands!

A-úrslit í A-flokki ungmenna voru síðastu úrslitin í gæðingakeppni á Norðurlandamótinu í Herning.

Ísland átti þar þrjá keppendur þá Matthías Sigurðsson á Gusti frá Stóra-Vatnsskarði, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Sólbjarti frá Akureyri og Sigurð Baldur Ríkharðsson á Júní frá Brúnum.

Guðmar Hólm og Matthías Sigurðsson börðust um efsta sætið og gerðu báðir mjög vel. Það fór þó svo að Matthías Sigurðsson með einkunnina 8,673 stóð uppi sem sigurvegari og Guðmar Hólm varð í öðru sæti með einkunnina 8,644, frábær árangur hjá íslensku knöpunum.

Sigurður Baldur og Júní voru í toppbaráttunni þar til kom að skeiði þar sem þeir náðu ekki fram sínu besta og enduðu í 8.sætinu.

Í þriðja sæti varð Elsa Johannesen á Prins frá Blönduósi sem keppir fyrir hönd Svíþjóðar.

Efstu þrjú á palli. Ljósmynd: Natalie Riedl

Fréttin verður uppfærð þegar heildarúrslit birtast.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link