Máttur flaug
Máttur frá Leirubakka féll í beygju í fyrri umferð fimmgangs hér á Gullmótinu og var því sýning hans ógild. Sú ákvörðum var tekin af yfirdómara, landsliðseinvaldi og mótsstjóra að þeir Sigurður og Máttur fengju að fara aftur en það verði áður en fjórgangur ungmenna hefst kl.13.35.
Það er gott að ekki fór illa og hvorki hestur né knapi sköðuðust við þessa byltu.
Vegna þessa er lokaniðurstaða ekki komin í fimmgangi opnum flokki.