MD VÍS auglýsir eftir sjálfboðaliðum
Fimmtudaginn 28. janúar hefst Meistaradeild VÍS af fullum krafti með keppni í smala. Það er mikil vinna við undirbúning á slíkri mótaröð og eru margar hendur sem leggja hönd á plóg til að allt gangi upp. Ef þú hefur áhuga á því að aðstoða við mótin í vetur endilega sendu línu á netfangið [email protected] eða [email protected].
Kveðja,
Stjórn Meistaradeildar VÍS.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson