Með tengsl við tauminn velferðarúrræði á Akureyri
Andrea Diljá Ólafsdóttir. Ljósmynd: Facebooksíða Akureyrabæjar
Íslenski hesturinn spilar stórt hlutverk í lífi fólks um allt land og eru notkunarmöguleikar hans afar margbreytilegir. Hann nýtist nú í auknum mæli sem mikilvægur hlekkur í velferðar- og heilsuúrræðum. Nærvera hestsins og hæfileiki hans til að mæta mönnum án dómhörku hefur reynst mörgum dýrmæt, ekki síst börnum og ungmennum sem standa frammi fyrir ýmsum áskorunum í lífinu.
Sagt er frá því á Facebooksíðu Akureyrarbæjar að Andrea Diljá Ólafsdóttir standi að baki velferðarúrræðinu Með tengsl við tauminn. Um er að ræða tilraunaverkefni í samstarfi við Akureyrarbæ þar sem reynslunám með hestum er nýtt til að efla vellíðan, sjálfstraust og persónulegan þroska barna og ungmenna. Diljá, sem er sérkennari og Akureyringur vikunnar, fékk hugmyndina þegar hún gekk sjálf í gegnum kulnun og vildi sameina menntun sína og ævilangan áhuga á hestum.
Öruggt umhverfi í hesthúsinu
Verkefnið er ætlað börnum sem upplifa kvíða, skólaforðun, lágt sjálfsmat eða aðrar áskoranir. Í stað þess að vinna eingöngu innan veggja skólastofunnar fer námið fram í rólegu umhverfi hesthússins. Þar fá þátttakendur tækifæri til að mynda tengsl, æfa samskipti og byggja upp trú á eigin getu.
„Hestarnir mæta manni eins og maður er. Þeir bregðast við nærveru, líðan og samskiptum án þess að dæma,“ segir Diljá, sem þekkir það sjálf úr æsku að finna ró og öryggi í hesthúsinu þegar hefðbundið skólaumhverfi var erfitt vegna ADHD og lesblindu.
Árangurinn fer fram úr væntingum
Verkefnið hefur verið í tilraunakeyrslu frá því í janúar og hefur reynslan farið fram úr væntingum. Diljá segir ótrúlegt að fylgjast með börnum, sem áður voru óörugg, opnast og eflast í samskiptum við hestana. Slagorð verkefnisins er: Engin mistök, bara lærdómur.
Diljá bindur miklar vonir við framtíðina og vonast til að verkefnið verði áfram hluti af stuðningsúrræðum á Akureyri, enda hafi það mikið forvarnargildi.
„Við viljum grípa börnin áður en þau verða jaðarsett og hjálpa þeim að finna leiðir til að taka virkari þátt í eigin lífi – og stundum geta tengsl við dýr, náttúru og öruggt umhverfi opnað dyr sem annars hefðu verið lokaðar,“ segir Andrea Diljá að lokum.
Heimild og ljósmyndir: Facebooksíða Akureyrarbæjar/Vefsíða Akureyrarbæjar
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
„Nýjungar í kennslu og rannsóknum“
Lokadagur skráninga á Reykjavíkurmeistaramótið nálgast