„Með tólf fyrstu verðlauna hryssur í ræktun“
Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega nú um hátíðarnar, en þar fáum við að kynnast hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.
Hafliði Þórður Halldórsson er ræktandi í Ármóti en bærinn er staðsettur í Rangárþingi ytra. Hrossarækt hefur verið stunduð í Ármóti síðan 2001 og í dag fæðast þar á bilinu tíu til tólf folöld á ári en þegar mest lét voru þau allt að 25 talsins.
“Við erum með tólf fyrstu verðlauna hryssur í ræktun og í sumar hélt ég þeim undir Vák frá Vatnsenda, Þröst frá Ármóti og Sæ frá Bakkakoti,” segir Hafliði en það eru þeir hestar sem Hafliði hefur verið að nota mest undan farin ár ásamt Fork frá Breiðabólsstað og Arthúr frá Baldurshaga.
Hafliði er með öll hrossin sín í Ármóti og Fróðholtshjáleigu en jarðirnar eru til samans um 460 hektarar. Á útigangi eru eitthvað um 130 hross en á húsi eru 35 hross. Á Ármóti er stór tamningastöð en tamningamaðurinn á svæðinu er Sigursteinn Sumarliðason ásamt unnustu sinni.
“Þeir Vákur og Þröstur eru báðir á járnum og einnig erum við með nokkur góð tryppi undan þeim,” segir Hafliði inntur eftir því hvað sé spennandi á járnum.
Hafliði lét sig ekki vanta á Landsmótið sem honum þótti frábært mót hvað varðar umgjörð, hestakost og framkvæmd. Hápunktur Hafliða í sumar var þó níu daga hestaferð sem hann fór um hálendi Suðurlands með kærustu sinni og góðum félögum.
Ræktunarstarfið segir Hafliði vera í mikill framför og segist sjá stórar framfarir í ræktun og reiðmennsku. “Ræktunarstarfið er í mikilli framför og á réttri leið til framfara, en kostnaðarálögur gagnvart ræktendum eru síhækkandi og eftirlitsstofnun MAST er flestum góðum bændum og ræktendum til trafala. En nauðsynleg stofnun á meðan þau sinna eftirliti á aðbúnaði og velferð dýra sem ekki er haldið vel utan um,“ bætir hann við að lokum.
Hafliði er mikill fjölskyldumaður og bestu stundirnar yfir hátíðarnar er samveran með börnunum mínum, mökum þeirra og barnabörnunum. Hann segist vera uppáhalds jólasveininni og eftirminnilegasta jólagjöfin er þegar að Arndís systir hans gaf honum innpakkaða LUX handsápu. „Á jólum er sígildur hamborgarahryggur ásamt rjúpum, humar og hreindýra carpaccio að hætti hússins á veisluborðinu í Ármóti, og um áramótin er stefnt á góða stund í faðmi góðra vina,“ segir Hafliði sem að lokum óskar öllum landsmönnum gleðilegrar hátíðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH