Meistarabragur á Viðari og Tuma-
Íslandsmeistarinn Viðarl Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi sigraði Slaktaumatöltið í Meistaradeild VÍS í kvöld. Ekki svo sem í fyrsta sinn og fyrirfram voru þeir sannarlega sigurstranglegir, enda sigrað þessa grein tvisvar eða þrisvar áður. Tumi er í fantaformi miðað við árstíma og sagði Viðar að hann væri ekki búinn að ríða honum mikið í vetur en væri nýlega farinn til þess. Viðar og Tumi hlutu 8,50 í einkunn.
Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Ösp frá Enni varð önnur, kom alla leið upp úr B-úrslitum og endaði mjög verðskuldað í öðru sætinu með 8,06 í einkunn. Aðspurð sagðist Þórdís Erla hafa stefnt á að komast beint í A-úrslit en orðið að fara smá Krýsuvíkurleið í þau. Hryssan var svolítið óeinbeitt á slaka taumnum í forkeppninni, vildi fara svolítið geyst og þannig gekk ekki allt upp. Í B-úrslitunum gekk allt upp og nokkuð öruggur sigur þeirra varð niðurstaðan.
Eftir forkeppnina var Jakob Svavar Sigurðsson á Auðnusyninum Al frá Lundum II annar en þurfti að gefa það sæti eftir í úrslitunum. Alur er stórefnilegur töltari og verður skeinuhættur í T2 í framtíðinni. Hann er fjaðrandi mjúkur og kominn í fallegt form hjá Jakobi.
Sjá heildarúrslit kvöldsins hér fyrir neðan.
A-úrslit:
1 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi 8,50
2 Þórdís Gunnarsdóttir / Ösp frá Enni 8,06
3 Jakob Svavar Sigurðsson / Alur frá Lundum II 7.96
4 Sigurbjörn Bárðarson / Jarl frá Mið-Fossum 7.79
5 Eyjólfur Þorsteinsson / Ósk frá Þingnesi 7.67
6 Sigurður Sigurðarson / Frami frá Víðidalstungu II 7.54
B-úrslit
1 Þórdís Gunnarsdóttir / Ösp frá Enni 7.96
2 Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal 7.46
3 Hinrik Bragason / Glymur frá Flekkudal 7.42
4 Halldór Guðjónsson / Baldvin frá Stangarholti 7.29
5 Sigurður Vignir Matthíasson / Hylur frá Stóra-Hofi 6.92
Forkeppni:
1 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi 7.9
2 Jakob Svavar Sigurðsson / Alur frá Lundum II 7.73
3 Eyjólfur Þorsteinsson / Ósk frá Þingnesi 7.43
4 Sigurbjörn Bárðarson / Jarl frá Mið-Fossum 7.4
5 Sigurður Sigurðarson / Frami frá Víðidalstungu II 7.37
6 Þórdís Gunnarsdóttir / Ösp frá Enni 7.33
7 Hinrik Bragason / Glymur frá Flekkudal 7.13
8 Sigurður Vignir Matthíasson / Hylur frá Stóra-Hofi 7.1
9 Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal 7.07
10 Halldór Guðjónsson / Baldvin frá Stangarholti 7.03
11 Þorvaldur Árni Þorvaldsson / Goði frá Hvoli 7
12 Teitur Árnason / Öðlingur frá Langholti 6.97
13 Bylgja Gauksdóttir / Grýta frá Garðabæ 6.8
14 Ragnar Tómasson / Rúnar Ormur frá Garðabæ 6.57
15 Lena Zielinski / Fura frá Langholtsparti 6.53
16 Valdimar Bergstað / Vafi frá Hafnarfirði 6.53
17 Artemisia Bertus / Stund frá Auðsholtshjáleigu 6.5
18 Ólafur Ásgeirsson / Jódís frá Ferjubakka 3 6.37
19 Daníel Jónsson / Fursti frá Stóra-Hofi 6.23
20 Guðmundur Björgvinsson / Skúmur frá Kvíarhóli 6.07
21 Árni Björn Pálsson / Frans frá Feti 6.07
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH