Meistaradeild KS – Staðan í liða- og einstaklingskeppni
Lið Þúfna fékk flest stig í gæðingafimi. Ljósmyndari: Helena Rut
Nú er lokið tveimur keppniskvöldum í Meistaradeild KS í hestaíþróttum. Þann 5 febrúar var keppt í slaktaumatölti þar sem Fanney Dögg Indriðadóttir sigraði á Trygglind frá Grafarkoti. Þá var keppt í gæðingafimi þann 19.febrúar og þar var það Gísli Gíslason sem stóð uppi sem sigurvegari á Trymbli frá Stóra-Ási.
Framundan eru þrjú keppniskvöld en á þeim verður keppt í fjórum greinum. Næsta mót fer fram 4.mars þegar keppt er í fjórgangi. Nú mun keppnin fara fram í Léttishöllinni á Akureyri. Þá verður keppt í fimmgangi þann 18.mars í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki lokakvöldið er á sama stað þann 3.apríl þegar keppt er í tölti og flugskeiði í gegnum höllina.
Hægt verður að nálgast beina útsendingu á vef Eiðfaxa frá öllum þessum kvöldum.
Nóg er eftir af stigum í pottinum en það er lið Þúfna sem tekið hefur töluvert afgerandi forystu í liðakeppninni en þau eru 41,5 stigi á undan næsta liði Hrímni.
Í einstaklingskeppninni leiðir Mette Mannseth með 50 stig.
Það verður spennandi að fylgjast með Meistaradeild KS í vetur og þá ekki síst spennandi liða- og einstaklingskeppni
Liðakeppni
Þúfur – 132 stig
Hrímnir – 90,5 stig
Regulator Complete/Skáney – 89 stig
Kerckhaert – 73,5 stig
Leiknisliðið – 64,5 stig
Equinics – 62 stig
Syðra – Skörðugil / Weierholz – 59,5 stig
Íbishóll – 50 stig
Einstaklingskeppni
- Mette Mannseth – 50 stig
- Gísli Gíslason Þúfur – 43 stig
- Finnbogi Bjarnason – 40 stig
- Elvar Logi Friðriksson – 35 stig
- Barbara Wenzl – 32 stig
- Ylfa Guðrún Svafarsdóttir – 31 stig
- Fanney Dögg Indriðadóttir – 28 stig
- Haukur Bjarnason – 27 stig
- Artemisia Bertus – 25 stig
- 10.-11. Guðmar Freyr Magnússon – 24 stig
- 10.-11. Randi Holaker – 24 stig
- Þórarinn Eymundsson – 22 stig
- Sina Scholz – 21 stig
- Bjarni Jónasson – 20 stig
15.17.Hörður Óli Sæmundarson – 18 stig
15.- 17. Magnús Bragi Magnússon – 18 stig
15.- 17. Líney María Hjálmarsdóttir – 18 stig
18.- 19. Þórdís Inga Pálsdóttir – 17 stig
18.- 19. Ástríður Magnúsdóttir – 17 stig
20.- 21. Vignir Sigurðsson – 16 stig
20.- 21. Sigrún Rós Helgadóttir – 16 stig
- Agnar Þór Magnússon – 14 stig
- Brynja Kristinsdóttir – 13 stig
- Viktoría Eik Elvarsdóttir – 10 stig
25.-26. Vera Schneiderchen – 8 stig
25.-26. Þorsteinn Björnsson – 8 stig
- Anna Herdís Sigurbjartsdóttir – 7 stig
- Arndís Björk Brynjólfsdóttir – 6 stig
- Elvar Einarsson -5 stig
- Konráð Valur Sveinsson 4 stig
31.-32. Hannes Brynjar Sigurgeirsson – 2 stig
31.-32. Finnur Jóhannesson – 2 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH