Meistaradeild Líflands og æskunnar – Védís Huld fagnaði sigri
Tæplega fjörutíu glæsilegir fulltrúar ungu kynslóðarinnar á aldrinum 13-18 ára kepptu í krefjandi keppni.
Keppnin gekk afar vel fyrir sig en það er alkunna að unga fólkið er stundvísast hestamanna og prúðast.
Eftir forkeppnina stóð Védís Huld Sigurðardóttir efst á Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum með 7,13. Skammt unda kom systir hennar Glódís Rún Sigurðardóttir á Glymjanda frá Íbíshóli með 6,93 og þriðji Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Freyði frá Leysingjastöðum II með 6,63.
Tveir knapar tóku þátt í B-úrslitum með sömu einkunn. Það voru þau Kristófer Darri Sigurðsson á Verði frá Vestra-Fíflholti og Eygló Hildur Ásgeirsdóttir á Sögu frá Dalsholti. Keppnin þeirra á milli varð hörð og skemmtileg en á endanum fór það svo að Kristófer Darri hafði sigur. Samkvæmt reglum deildarinnar hlaut hann þó ekki sæti í A-úrslitum enda afar stuttur tími milli atriða á móti sem tók aðeins rúma fjóra tíma.
Védís Huld gaf ekkert eftir þegar komið var í A-úrslitin og hélt forystunni allt til enda og hlaut 7,30 í einkunn fyrir vel heppnaða sýningu. Glódís Rún hélt sömuleiðis sínu sæti og varð önnur með 7,13 og Benedikt Ólafsson hreppti þriðja sætið á Biskupi sínum með 6,93.
Lið Hrímnis í deildinni tók forystu í liðakeppninni og er staðan í henni svona eftir fyrsta mót:
| Hrímnir | 34,5 |
| Top Reiter | 11,5 |
| Hofsstaðir/Sindrastaðir | 9,5 |
| Stafholt | 4,5 |
| Klettur | 1,5 |
Þeir sem hlutu stig í einstaklingskeppninni voru þessir:
| Védís Huld Sigurðardóttir | 12 | Hrímnir |
| Glódís Rún Sigurðardóttir | 10 | Hrímnir |
| Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | 8 | Hofsstaðir/Sindrastaðir |
| Hulda María Sveinbjörnsdóttir | 7 | Top Reiter |
| Sigrún Högna Tómasdóttir | 4,5 | Hrímnir |
| Signý Sól Snorradóttir | 4,5 | Top Reiter |
| Sara Dís Snorradóttir | 4,5 | Stafholt |
| Benedikt Ólafsson | 4,5 | Hrímnir |
| Kristófer Darri Sigurðsson | 1,5 | Klettur |
| Eygló Hildur Ásgeirsdóttir | 1,5 | Hofsstaðir/Sindrastaðir |
Á næsta móti verður svo keppt í fimmgangi. Það mót fer fram 23. febrúar í Samskipahöllinni.
V1 fjórgangur – allar niðurstöður
| Forkeppni | ||||
| Sæti | Knapi | Hross | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum | Sleipnir | 7,13 |
| 2 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Glymjandi frá Íbishóli | Sleipnir | 6,93 |
| 3 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Freyðir frá Leysingjastöðum II | Þytur | 6,63 |
| 4 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Garpur frá Skúfslæk | Sprettur | 6,47 |
| 5-8 | Signý Sól Snorradóttir | Rektor frá Melabergi | Máni | 6,37 |
| 5-8 | Sara Dís Snorradóttir | Gustur frá Stykkishólmi | Sörli | 6,37 |
| 5-8 | Sigrún Högna Tómasdóttir | Marta frá Húsavík | Smári | 6,37 |
| 5-8 | Benedikt Ólafsson | Biskup frá Ólafshaga | Hörður | 6,37 |
| 9-10 | Kristófer Darri Sigurðsson | Vörður frá Vestra-Fíflholti | Sprettur | 6,33 |
| 9-10 | Eygló Hildur Ásgeirsdóttir | Saga frá Dalsholti | Fákur | 6,33 |
| 11 | Jón Ársæll Bergmann | Hrafndís frá Ey I | Geysir | 6,30 |
| 12-13 | Elín Þórdís Pálsdóttir | Ópera frá Austurkoti | Sleipnir | 6,27 |
| 12-13 | Glódís Líf Gunnarsdóttir | Magni frá Spágilsstöðum | Máni | 6,27 |
| 14 | Matthías Sigurðsson | Caruzo frá Torfunesi | Fákur | 6,20 |
| 15 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Ernir Tröð | Sprettur | 6,17 |
| 16 | Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson | Vídd frá Lækjamóti | Þytur | 5,97 |
| 17 | Guðný Dís Jónsdóttir | Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ | Sprettur | 5,93 |
| 18 | Þorvaldur Logi Einarsson | Saga frá Miðfelli 2 | Smári | 5,90 |
| 19-20 | Þórey Þula Helgadóttir | Bragur frá Túnsbergi | Smári | 5,77 |
| 19-20 | Sigurður Steingrímsson | Eik frá Sælukoti | Geysir | 5,77 |
| 21 | Natalía Rán Leonsdóttir | Strákur frá Lágafelli | Hörður | 5,70 |
| 22 | Erika J. Sundgaard | Viktoría frá Miðkoti | Geysir | 5,60 |
| 23 | Arndís Ólafsdóttir | Styrkur frá Kjarri | Glaður | 5,57 |
| 24-25 | Hrund Ásbjörnsdóttir | Ábóti frá Söðulsholti | Fákur | 5,53 |
| 24-25 | Diljá Sjöfn Aronsdóttir | Kristín frá Firði | Sprettur | 5,53 |
| 26-27 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Snillingur frá Sólheimum | Geysir | 5,50 |
| 26-27 | Hekla Rán Hannesdóttir | Krás frá Árbæjarhjáleigu II | Sprettur | 5,50 |
| 28-29 | Bergey Gunnarsdóttir | Hátíð frá Litlalandi Ásahreppi | Máni | 5,47 |
| 28-29 | Jónas Aron Jónasson | Herdís frá Hafnarfirði | Sörli | 5,47 |
| 30 | Júlía Guðbjörg Gunnarsdóttir | Vörður frá Eskiholti II | Sprettur | 5,33 |
| 31-32 | Anna María Bjarnadóttir | Bragabót frá Bakkakoti | Geysir | 5,27 |
| 31-32 | Kristján Árni Birgisson | Karmur frá Kanastöðum | Geysir | 5,27 |
| 33 | Viktoría Von Ragnarsdóttir | Gustur frá Yztafelli | Hörður | 5,13 |
| 34 | Sveinn Sölvi Petersen | Prins frá Njarðvík | Fákur | 5,07 |
| 35 | Arnar Máni Sigurjónsson | Blesa frá Húnsstöðum | Fákur | 4,90 |
| 36 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Sigur frá Sperðli | Geysir | 4,83 |
| 37 | Patrekur Jóhann Kjartansson | Stjarni frá Búð | Geysir | 4,33 |
| 38 | Kristín Hrönn Pálsdóttir | Gaumur frá Skarði | Fákur | 0,00 |
| B úrslit | ||||
| Sæti | Knapi | Hross | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 9 | Kristófer Darri Sigurðsson | Vörður frá Vestra-Fíflholti | Sprettur | 6,43 |
| 10 | Eygló Hildur Ásgeirsdóttir | Saga frá Dalsholti | Fákur | 6,40 |
| A úrslit | ||||
| Sæti | Knapi | Hross | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum | Sleipnir | 7,30 |
| 2 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Glymjandi frá Íbishóli | Sleipnir | 7,13 |
| 3-4 | Benedikt Ólafsson | Biskup frá Ólafshaga | Hörður | 6,93 |
| 3-4 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Freyðir frá Leysingjastöðum II | Þytur | 6,93 |
| 5 | Sigrún Högna Tómasdóttir | Marta frá Húsavík | Smári | 6,50 |
| 6 | Signý Sól Snorradóttir | Rektor frá Melabergi | Máni | 6,43 |
| 7 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Garpur frá Skúfslæk | Sprettur | 6,27 |
| 8 | Sara Dís Snorradóttir | Gustur frá Stykkishólmi | Sörli | 6,20 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH