Meistaradeild: Ráslistar fyrir Gæðingafimi
Það eru engar smá stjörnur sem keppendur Meistaradeildar tefla fram í keppni í gæðingafimi á annað kvöld og á ráslistanum má sjá hátt dæmda stóðhesta, Íslandsmeistara, Landsmótssigurvegara, hross sem hafa verið í toppbaráttunni á keppnisvellinum og stjörnur framtíðarinnar. Meistaradeildin hefur nú sent frá sé ráslista í gæðingafimi.
Gæðingafimin er mikil áskorun fyrir keppendur. Þar eru allir þættir dæmdir sérstaklega og síðan heildarútlit sýningarinnar. Það sem dómararnir horfa meðal annars á er hversu margar og erfiðar æfingar parið gerir og hvernig þær eru framkvæmdar, hvernig æfingarnar blandast við gangtegundir, flæði sýningarinnar, fjölhæfni og styrkleiki gangtegunda. Knapar þurfa að sýna að lágmarki þrjár gangtegundir og fimm fimiæfingar og er einungis ein skylduæfing, en hún er opinn sniðgangur á tölti. Lengd sýningar má vera að hámarki þrjár og hálf mínúta.
Keppnin hefst annað kvöld klukkan 19:30 í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli.
Það verður engin forsala en aðgangseyrir er krónur 1.500 fyrir fullorðna og krónur 500 fyrir 12 ára og yngri. Sala á ársmiðum er enn í fullum gangi í verslununum Top Reiter, Líflandi og Baldvini og Þorvaldi og kostar ársmiðinn krónur 5.000.
Hér að neðan er ráslistinn fyrir gæðingafimina:
1 Sigursteinn Sumarliðason – Spónn.is – Geisli frá Svanavatni
2 Hulda Gústafsdóttir – Árbakki / Norður-Götur – Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu
3 Vignir Siggeirsson – Hrímnir – Heljar frá Hemlu
4 Bergur Jónsson – Top Reiter / Ármót / 66°Norður – Simbi frá Ketilsstöðum
5 Anna Valdimarsdóttir – Málning / Ganghestar – Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu
6 Hekla Katharína Kristinsdóttir – Auðsholtshjáleiga – Vígar frá Skarði
7 Sigurður Óli Kristinsson – Lýsi – Svali frá Feti
8 Jakob Svavar Sigurðsson – Top Reiter / Ármót / 66°Norður – Árborg frá Miðey
9 Sigurður Sigurðarson – Lýsi – Hljómur frá Höfðabakka
10 Teitur Árnason – Árbakki / Norður-Götur – Þulur frá Hólum
11 Þórdís Erla Gunnarsdóttir – Auðsholtshjáleiga – Tíbrá frá Auðsholtshjáleigu
12 Sigurður Vignir Matthíasson – Málning / Ganghestar – Máttur frá Leirubakka
13 Þorvaldur Árni Þorvaldsson – Top Reiter / Ármót / 66°Norður – Kiljan frá Steinnesi
14 Bylgja Gauksdóttir – Auðsholtshjáleiga – Grýta frá Garðabæ
15 Viðar Ingólfsson – Hrímnir – Röskur frá Sunnuhvoli
16 Sólon Morthens – Spónn.is – Frægur frá Flekkudal
17 Sigurbjörn Bárðarson – Lýsi – Jarl frá Mið-Fossum
18 Hinrik Bragason – Árbakki / Norður-Götur – Sveigur frá Varmadal
19 Henna Johanna Sirén – Spónn.is – Gormur frá Fljótshólum 3
20 Valdimar Bergstað – Málning / Ganghestar – Leiknir frá Vakurstöðum
21 Snorri Dal – Hrímnir – Helgi frá Stafholti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH