Meistaradeild sýnd í beinni – leiðbeiningar
Meistaradeildin í hestaíþróttum fer fram kl. 19.30 í kvöld. Mðfylgjandi eru leiðbeiningar um hvernig hægt er að tengjast beinni útsendingu á netinu frá keppni í gæðingafimi.
Aðgangur að beinu útsendingunum kostar 499 krónur. Til að tengjast beinni útsendingu þarf að smella á borðann “bein útsending” á síðunni www.meistaradeild.is.
Hægt er að velja um tvær greiðsluleiðir:
Greitt með SMS (fyrir viðskiptavini Símans, Vodafone og NOVA): Sendu SMS á 1900 með orðinu „hestur“ Aðgangskóðinn þinn verður sendur um hæl, þú slærð hann inní reitinn á skjánum og ertu þá kominn inná beina útsendingu frá Meistaradeildinni. Kóðinn veitir aðeins einni tölvu aðgang að útsendingunni Hvert SMS kostar 499 kr.
Greitt með greiðslukorti: Þá er smellt á orðið “hér” í textanum “Einnig er hægt að greiða með greiðslukorti með því að smella hér” Þá opnast skráningarmynd sem þarf að fylla út og smella á GREIÐA, þá mun birtast kvittun sem inniheldur slóð sem þarf að aðeins að smella á og ertu þá komin inná beina útsendingu frá Meistaradeildinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH