Meistaradeild UMFÍ
Föstudaginn 2. apríl (föstudaginn langa) hefst meistaradeild UMFÍ í Rangárhöllinni kl. 14.00 með keppni í smala og síðan verður keppt í fjórgangi.
Smalabrautin verður sett upp 1. apríl (þetta er ekki gabb) kl. 11.00 og verður opin til æfinga til kl. 19.00. Vegna móts í Rangárhöllinni verður brautin tekin niður, en ætti að vera komin upp aftur á föstudagsmorgun milli kl. 10 og 11.00.
Hvetjum hestafólk til að mæta og hvetja unga fólkið.
Skemmtiatriði, hundafimi og veitingasala.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing