Meistaradeild ungmenna – lið K-Raf

  • 4. febrúar 2021
  • Fréttir

Katrín Ósk Kristjánsdóttir er liðsstjóri liðs K-Raf í Meistaradeild ungmenna.

Fjórða liðið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju er lið Ká-Raf ehf.

Liðsstjóri er Katrín Ósk Kristjánsdóttir. Hún er nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurlands, vinnur í ísbúðinni Huppu og er svo með nokkur hross í þjálfun. Katrín stefnir á að keppa alla vegana í fjórgangi, slaktaumatölti og tölti, restin kemur svo í ljós.

Unnur Lilja Gísladóttir vinnur á Grænhól í Ölfusi. Hún ætlar að reyna að keppa í öllum greinum.

Birgitta Ýr Bjarkardóttir er nemandi í Fjölbrautaskólanum í Mosfellsbæf. Hún vinnur hjá Fredricu Fagerlund og ætlar að reyna að keppa í öllum greinum.

Melkorka Gunnarsdóttir er nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurlands ásamt þvi að vinna á Ingólfshvoli. Hún stefnir á að keppa í öllum greinum.

Meistardeild ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju hefst föstudaginn 5. febrúar í Fákaseli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link