Meistaradeild Vesturlands

  • 16. september 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Áhugasamir hvattir til að sækja um.

Nú þegar hafinn hefur verið undirbúningur að stofnun Meistaradeildar Vesturlands í Hestaíþróttum óskar undirbúningsnefndin eftir að þeir sem kunna að hafa áhuga á þátttöku í deildinni í vetur setji sig í samband við Arnar Ásbjörnsson á netfangið [email protected] fyrir 1. október.

Stefnt er að keppni í 5 greinum hestaíþrótta á 4 kvöldum í febrúar og mars . Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru Fjórgangur V1, Fimmgangur F1, Tölt T1, Gæðingafimi og Flugskeið. Deildin er hugsuð sem vettvangur fyrir sterkustu hesta og menn á svæðinu. Gerð er krafa um að keppendur hafi náð 18 ára aldri og séu búsettir og/eða starfi á Vesturlandi. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link