Meistaradeildin á RÚV í vetur
Keppni í Meistaradeildinni í hestaíþróttum verður sýnd í beinni á RÚV og RÚV 2 í vetur. Fyrsta mótið fer fram nk. fimmtudag 30. janúar þegar keppt verður í fjórgangi í TM höllinni í Víðidal í Reykjavík.
Umsjón með útsendingunum hefur Hulda G. Geirsdóttir dagskrárgerðarmaður og alþjóðlegur dómari í hestaíþróttum og henni til aðstoðar við lýsingu verður Steindór Guðmundsson alþjóðlegur dómari í hestaíþróttum.
Hans Steinar Bjarnason sér um viðtöl við knapa og Mette Mannseth tamningameistari og reiðkennari mun einnig slást í hópinn og lýsa gæðingafiminni í mars.
Dagskráin er eftirfarandi:
30.jan. fim. 19:00 fjórgangur TM höllin, Fáki, Reykjavík.
13. febrúar | Fimmtudagur | 19:00 | Slaktaumatölt T2 | TM höllin, Fákur, Reykjavík |
27. febrúar | Fimmtudagur | 19:00 | Fimmgangur F1 | Samskipahöllin, Sprettur, Kópavogur |
8. mars | Sunnudagur | Gæðingafimi | Samskipahöllin, Sprettur, Kópavogur | |
14. mars | Laugardagur | 13:00 | Gæðingaskeið og 150m. skeið | |
26. mars | Fimmtudagur | 19:00 | Tölt T1 og flugskeið |
Allar hringvallargreinar verða sendar út á RÚV 2, en gæðingafimi og skeiðgreinar verða á aðalrás RÚV.
(Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.)