Meistaradeildin að hefjast
„Forsala aðgöngumiða fyrir fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum 2013 er hafin. Mótið hefst klukkan 18:30 á fimmtudag 31. janúar með veglegri opnunarhátíð. Fyrsta mót ársins er fjórgangur. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu hestum landsins verði skráðir til leiks.
Knapar mæta á fyrstu æfingar í Ölfushöllinni um n.k. helgi og þá má
búast við miklum tilþrifum. Gera má ráð fyrir harðri baráttu allt frá
fyrstu keppni.
Í tilefni 10 ára afmælis Meistaradeildar í hestaíþróttum verður blásið
til veglegrar opnunarhátíðar þar sem liðin og styrktaraðilar verða
kynnt, Guðni Ágústsson ávarpar gesti, Brokkkórinn mætir og svo kemur
Ingó veðurguð og tekur nokkur lög. Lofar góðu um frábært kvöld og
spennandi keppni.
Aðgangseyrir á mótið er krónur 1.500 og krónur 500 fyrir börn yngri en
12 ára. Miðarnir eru til sölu í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og
Þorvaldi, Selfossi. Á sömu stöðum er einnig hægt að kaupa ársmiða á
deildina en þeir kosta krónur 5.000,“ segir í tilkynningu frá stjórn Meistaradeildar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH