Meistaradeildinni frestað um sólarhring
Stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum hefur tekið þá ákvörðun að fresta keppni í Gæðingafimi um einn sólarhring vegna veðurs. Mótið mun því fara fram í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, annað kvöld klukkan 19:30.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út stormviðvörun fyrir suður- og vesturland í kvöld og stefnir í eins veður og var síðast liðinn þriðjudag. Veðurspáin fyrir morgundaginn er mun hæagstæðari og því var tekin sú ákvörðun að fresta mótinu um sólarhring.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH