Meistaramót Andvara framundan
Meistaramót Andvara verður haldið helgina 2.-4. september.
Undirbúningur fyrir mótið er hafinn og verður mótið með sama sniði og undanfarin ár. Mótið er íþróttamót og er að öllu jöfnu síðasta mót ársins. Mótið verður haldið á mótssvæði Andvara í Garðabæ og er hápunktur mótsins er svokallað ljósaskeið, skeiðkappreiðar þar sem völlurinn er lýstur upp að kvöldlagi.
Dagskrá og skráning verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH