Meistaramót Íslands í Gæðingakeppni-engin lágmörk og Gæðingatölt

  • 12. júlí 2020
  • Fréttir

Teitur Árnason og Hafsteinn frá Vakurstöðum, sigurvegarar í A-flokki á LM 2018

WR Meistaramót Íslands í Gæðingakeppni verður haldið 17-19.júlí á Rangárbökkum við Hellu.

Engin lágmörk eru í gæðingakeppnina og keppt er í A-og B-flokki opnum flokki(gæðinga 1), A-og B-flokki áhugamanna(gæðinga 2), A-og B-flokki ungmenna, unglinaflokki og barnaflokki. Ásamt 100m skeiði.

Einnig er prufugrein sem kallast Gæðinatölt og boðið verður uppá 2 flokka

17 ára og yngri (í sportfeng til að skrá,fjórgangur V5 ungmenna)

hér er dæmt hægt tölt, snúið við og frjálsferð uppá hina höndina ásamt ásetu og stjórnun á báðum atriðum sem þýðir að deilitalan er 4. Það munu vera 6 pör sem mæta í A-úrslit.

18 ára og eldri (í sportfeng til að skrá, fjórgangur V5 opinn flokkur)

hér er dæmt hægt tölt snúið við og frjálsferð uppá hina höndina ásamt vilja og fegurð í reið og er deilitalan 4 þar sem öll atriði gilda jafnt. Það mun vera 6 pör sem mæta í A-úrslit.

Skráning er í fullum gangi inná sportfeng.com og lýkur þriðjudagskvöldið 14.júlí kl 23:59. Ef vandræði koma upp við skráningu er hægt að hafa samband í síma 8677460 áður en skráningu lýkur.

Allar afskráningar fara fram í síma 8677460.

Skráningargjald er 6000kr fyrir ungmenni og eldri en 4000kr fyrir börn og unglinga í Gæðingakeppninni. 100m skeiðið er 3000kr og Gæðingatöltið er 5000kr, allt greiðist um leið og skráning fer fram.

Mótanefndin.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar