Meistarar í gæðingatölti krýndir í fyrsta sinn hér á landi
Elísabet Vaka stóð efst í flokki 17 ára og yngri í gæðingatölti
Gæðingatölt er ný keppnisgrein sem hefur verið í þróun en í henni ríða knapar hægt tölt og yfirferðartölt og eru dæmdir á skala gæðingadómara. Að þessu sinni var keppt í tveimur flokkum annars vegar 18 ára og eldri og hins vegar 17 ára og yngri.
Í flokki 17 ára og yngri var það Elísabet Vaka Guðmundsdóttir sem lenti í efsta sæti á Heiðrúnu frá Bakkakoti og hlaut hún í einkunn 8,65.
Í flokki 18 ára og eldri var það Hekla Katharína Kristinsdóttir sem stóð efst en hún sat Lilju frá Kvistum og hlaut í einkunn 8,70.
A-úrslit Gæðingatölt 17 ára og yngri
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Elísabet Vaka Guðmundsdóttir / Heiðrún frá Bakkakoti | 8,65 |
| 2 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Sóló frá Skáney | 8,62 |
| 3 | Sigurður Baldur Ríkharðsson / Trymbill frá Traðarlandi | 8,53 |
| 4 | Herdís Björg Jóhannsdóttir / Snillingur frá Sólheimum | 8,46 |
| 5 | Magnús Máni Magnússon / Stelpa frá Skáney | 8,45 |
| 6 | Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir / Abba frá Minni-Reykjum | 8,36 |
| 7 | Elísabet Líf Sigvaldadóttir / Sumarliði frá Hárlaugsstöðum 2 | 7,89 |
| 8 | Ágúst Einar Ragnarsson / Herdís frá Hafnarfirði | 7,59 |
| 9 | Haukur Orri Bergmann Heiðarsson / Tenor frá Grundarfirði | 7,51 |
| 10 | Sigurbjörg Helga Vignisdóttir / Bjarmi frá Brekkukoti | 7,27 |
A-úrslit Gæðingatölt 18 ára og eldri
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Hekla Katharína Kristinsdóttir / Lilja frá Kvistum | 8,70 |
| 2 | Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Rós frá Breiðholti í Flóa | 8,64 |
| 3 | Maiju Maaria Varis / Dagný frá Stekkholti 3 | 8,49 |
| 4 | Sylvía Sól Magnúsdóttir / Reina frá Hestabrekku | 8,43 |
| 5 | Stefanía Sigfúsdóttir / Framtíð frá Flugumýri II | 8,35 |
| 6 | Vilfríður Sæþórsdóttir / List frá Múla | 8,34 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV