Meistari Máttur – video-

  • 19. maí 2011
  • Fréttir
Meistari Máttur - video-

Eiðfaxi fylgdist grannt með yfirlitssýningu kynbótahrossa sem fram fór í Víðidal í gær. Voru þar sýnd myndarleg og hæfileikarík hross og að venju voru þau hæst dæmdu verðlaunuð.

Máttur frá Leirubakka fékk hæstu aðaleinkunn allra hrossa á héraðssýningunni, 8,48. Hann var jafnframt hæstur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri. Fyrir sköpulag hlaut hann7,99 og fyrir hæfileika 8,80. Þar af fékk hann einkunnina 9 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið. Máttur er undan Keili frá Miðsitju og Hervarsdótturinni Hrafnkötlu L52 frá Leirubakka.

Sýnandi Mátts var Sigurður V. Matthíasson en þess má geta að Sigurður sýndi 18 hross á sýningunni, þar af fóru tíu þeirra í fyrstu aðaleinkunn!

 

IS2003186669 Máttur frá Leirubakka
Frostmerki: L352
Örmerki: 968000001804526
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Sveinn R. Eyjólfsson
Eigandi: Edda Rún Ragnarsdóttir, Sigurður Tryggvi Sigurðsson, Sigurður Vignir Matthíasson
F.: IS1994158700 Keilir frá Miðsitju
Ff.: IS1974158602 Ófeigur frá Flugumýri
Fm.: IS1977257141 Krafla frá Sauðárkróki
M.: IS1995286668 Hrafnkatla L52 frá Leirubakka
Mf.: IS1976157003 Hervar frá Sauðárkróki
Mm.: IS1988237010 Dimma L2 frá Stóra-Langadal
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning í Víðidal
Mál (cm): 145 – 136 – 144 – 64 – 148 – 39 – 49 – 43 – 6,7 – 30,5 – 19,5
Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 7,5 – 7,0 – 8,0 – 7,0 = 7,99
Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 9,0 – 8,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 = 8,80
Aðaleinkunn: 8,48      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Sigurður Vignir Matthíasson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link