“Mér leið eins og ég hefði sofnað í kennslustund”

  • 16. desember 2021
  • Fréttir

Fjölskyldumynd frá því nú í desember. Frá vinstri Eva María, Ísak Þórir, Ísólfur, barnabarnið Stormur Nóel, Vigdís, Emma og Guðmar.

Hrossabændur teknir tali - Lækjamót II

Nú þegar líða fer að jólum ætlar Eiðfaxi að stytta okkur stundirnar og taka nokkra ræktendur landsins á tali sem eru í óðaönn að undirbúa komandi tímabil. Það er komið að Lækjamóti II í Húnavatnssýslu en þar búa þau Ísólfur Líndal Þórisson, Vigdís Gunnarsdóttir ásamt syni sínum Guðmari Hólm Ísólfssyni Líndal og Aðalbjörgu Emmu Maack, kærustu Guðmars.

Á Lækjamóti II hafa þau komið sér upp einn flottustu aðstöðu landsins, Sindrastöðum, þar sem allt er til alls. “Lækjamót ll er 500 hektarar, með upprekstrar heimild á Víðidalstunguheiði sem er mjög stór! Við erum með 28 hross á húsi hjá okkur og á útigangi eru þau í kringum 50 stk,” segir Ísólfur en þau hafa ræktað hross lengi en byrjuðu ekki af fullum krafti fyrr en árið 2015. “Fyrst vorum við að fá 1 – 2 folöld á ári en nú eru þetta orðin 5 – 8 folöld á ári. Við erum með hryssur sem við eigum með öðrum í ræktun og fáun því annaðhvert folald þar. Við fáum líka oft að halda hryssum sem við erum með í þjálfun sem er mjög skemmtilegt og eykur fjölbreytileikann í stóðinu hjá okkur,” segir Ísólfur. Ræktunarhryssur búsins eru ekki af verri endanum en þetta eru þær; Nútíð frá Leysingjastöðum ll (8,34 klárhryssa), Ísey frá Læjamóti ll (8,60 alhliðahryssa), Vissa frá Torfunesi (8,26 alhliðahryssa), Vala frá Lækjamóti (8,21 klárhryssa), Ósvör frá Lækjamóti (8,18 klárhryssa), Líf frá Þjóðólfshaga l (8,17 alhliðahryssa), Hrönn frá Leysingjastöðum ll (8,00 alhliðahryssa) og Björk frá Lækjamóti (7,65 klárhryssa).

“Í sumar fengum við undan Nútíð og Eldjárni frá Skipaskaga jarpa hryssu, við fengum skjóttann hest undan Ísey og Ský frá Skálakoti, moldótta hryssu undan Líf og Arthúri frá Baldurshaga, móálóttann hest undan Vissu og Styrk frá Leysingjastöðum II og rauðstjörnóttann hest undan Völu og Sindra frá Leysingjastöðum II”, segir Ísólfur en öll hlutu folöldin nöfn sem byrja á R; Ró, Ríó, Ronja, Radíus og Rómeó. “Í sumar fórum við með Nútíð undir Blund frá Þúfum, Ísey undir Freyði frá Leysingjastöðum II, Líf, Hrönn og Björk allar undir Eldjárn frá Skipaskaga,” segir Ísólfur en í ræktuninni eru þau að leitast eftir því að rækta yfirveguð afkastahross með miknn fótaburð. “Verðmætasti eiginleikinn virðist vera fótaburður. En við erum að leitast við að búa okkur til keppnishesta fyrir okkur sjálf,” bætir hann við.

Bara spennandi hross á húsi
Eins og var sagt hér áður að þá er aðstaðan á Sindrastöðum ein sú besta á landinu en hvað eru þau með spennandi á járnum í augnablikinu? “Við höfum það sem reglu hér á Sindrastöðum að það eru bara spennandi hross á húsi. Erum með mjög skýra mynd af því hvernig hross okkur langar að vinna með. Gæti talið upp mörg spennandi og góð hross á járnum en ef ég tel einhvern einn upp þá kemur fyrst upp í hugann Sindri hans Guðmars, mjög efnilegur hestur og verður frábær í fimmgang og slaktaumatölt,” segir Ísólfur en Sindri er stóðhestur undan Skýr frá Skálakoti og Rödd frá Lækjamóti og fór hann í fínan dóm fimm vetra en að sögn Ísólfs á hann mikið eftir ógert á kynbótabrautinni áður en keppnisferill hans hefst. “Tryppin sem eru á fjórða vetur eru mjög fín. Koma úr ýmsum áttum hvað ættir varðar sem er bara gaman. Þar er ein mórauð sem við erum sérstaklega spennt fyrir sem heitir Orustuþota, undan Besta frá Upphafi og Stygg frá Akureyri. Stygg þessi var mikið uppáhald hjá okkur mjög skemmtileg á skeiði og einstakur karakter. Það gerir þetta enn skemmtilegra að hún er fyrsta og eina afkvæmi Styggar en hún eignaðist Orustuþotu 19 vetra. Allir vita nú hvað Besti er mikill afrekshestur og var hugmyndin að búa til yfirburða skeiðhross,” segir Ísólfur og bætir við að hún líti nú út fyrir að ætla að verða alvöru alhliða gæðingur sem hann telur ekki vera verra.

Sex hross sýnd í kynbótadómi í ár
Guðmar, sonur Ísólfs, var nú á dögunum valinn í U21 landslið Íslands en hann átti góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni í sumar. Að sögn Ísólfs er árangur hans og valið í landsliðið einn af hápunktum ársins fyrir þeim. “Árangur Guðmars okkar á árinu var frábær eins og oft áður. Hann og Freyðir unnu gæðingakeppnina í sínum aldursflokki á Fjórðungsmóti Vesturlands og töltið á Ósvör frá Lækjamóti. Hann kórónaði svo árið með því að vera valinn í U21 landslið íslands. Hvað varðar ræktunarstarfið hjá okkur þá er alltaf gaman þegar fjögra vetra tryppin fara í fyrstu verðlaun, það gerði hún Nál frá Lækjamóti ll í sumar,” segir Ísólfur en aldrei hafa fleiri hross frá búinu verið sýnd í kynbótadómi eins og í ár eða alls 6 talsins. Talið berst þá yfir í kynbótasýningar ársins en hvernig leist Ísólfi á kynbótastarfið í ár? “Það var athyglisvert. Mér leið eins og ég hafi sofnað í kennslustund þar sem farið var yfir þessar áherslubreytingar í mati gangtegunda. Mér sýnist þær gera það að verkum að áhrif reiðmennsku fara að vega þyngra í mati hrossa. Það þarf ekkert endilega að vera slæmt en þá þurfa dómarar líka að standa alveg klárir á því hvað er rétt líkamsbeiting. Og samspil knapa og hests sé rétt, mér fannst ég sjá of marga háadóma falla þar sem “halda og sparka” reiðmennska var viðhöfð. Það getur ekki verið rétt… allavegna finnst mér það ekki,” segir Ísólfur og á þessum orðum lýkur ræktunar- og kynbótaspjallinu við hrossabóndann í Húnavatnssýslu og við dembum okkur yfir í jólaspurningarnar.

Hvað eru þið með í jólamatinn ?
Ofboðslega klassískt, Svínahamborgarahryggur á aðfangadag og hangikjét á jóladag. Svo er maður yfirleitt með konfekt í æð þessa daga.

Hver er uppáhalds jólahefðin?
Ég er alinn upp við að segja “gleðileg jól” að morgni jóladags. Ég held í þá hefð þó svo Vigdís sé alin upp við það klukkan 18 á aðfangadag. En niðurstaðan var að við segjum það bara báða dagana.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link