Mette fékk gult spjald
Milliriðill A-flokks gæðinga er hafinn, 30 glæsilegustu alhliðagæðingar greinarinnar stíga nú í braut hver af öðrum. Nú þegar sex gæðingar af þrjátíu hafa hlotið einkunn er Sturla frá Hafsteinsstöðum efstur með 8,55
Mette Mannseth, sem sýndi Seið frá Flugumýri II, hlaut gul spjöld frá dómurum fyrir grófa reiðmennsku.
- Hinrik Bragason Sturla frá Hafsteinsstöðum 8,55
- Sólon Morthens Frægur frá Flekkudal 8,54
- Hans Þór Hilmarsson Lotta frá Hellu 8,53
- Mette Mannseth Seiður frá Flugumýri II 8,41
- Guðmundur Björgvinsson Gjöll frá Skíðbakka III 8,38
- Vignir Siggeirsson Þröstur frá Hvammi 8,38
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH