Meistaradeild KS í hestaíþróttum Mette Mannseth á Skálmöld frá Þúfum unnu Gæðingafimi KS deildar

  • 19. mars 2021
  • Fréttir
Annað mót KS deildarinnar fór fram í kvöld.

Annað mótið í Meistaradeild KS fór fram í kvöld á Sauðárkróki. Keppt var í Gæðingafimi en sú grein er afar krefjandi keppnisgrein og var í fyrsta skipti keppt á þriðja stigi í gæðingafimi LH.
Þrjú lið tefldu fram leynigestum að þessu sinni. Lið Hofstorfan – 66°norður tefldi fram Ragnhildi Haraldsdóttur á Úlfi frá Mosfellsbæ, lið Leiknis Fredricu Fagerlund og Stormi frá Yztafelli og lið Equinics Ólöfu Rún Guðmundsdóttur og Snót frá Laugardælum.

Upphitunarknapar kvöldsins voru Eva Dögg Pálsdóttir á Rökkva frá Rauðalæk og Guðný Margrét Siguroddsdóttir á Reyk frá Brennistöðum.
Sigurvegari kvöldsins var Mette Mannseth með heimaræktuðu hryssuna Skálmöld frá Þúfum en þær sigruðu einnig fjórgang hér fyrr í mars.

 

Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi:
1.Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum 8,63
2.Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási 8,27
3.Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ 8,20
4.Fredrica Fagerlund og Stomur frá Yztafelli 8,13
5.Þórarinn Eymundsson og Vegur frá Kagaðarhóli 7,77
6.Randi Holaker og Þytur frá Skáney 7,63
7.Fanney Dögg Indriðadóttir og Trygglind frá Grafarkoti 7,50
8.Freyja Amble Gísladóttir og Stimpill frá Þúfum 7,40
9.-10.Guðmar Freyr Magnússon og Snillingur frá Íbishóli 7,37
9.-10.Pétur Örn Sveinsson og Hlekkur frá Saurbæ 7,37
11.Barbara Wenzl og Mætta frá Bæ 7,27
12.-13.Védís Huld Sigurðardóttir og Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 7,23
12.-13.Finnbogi Bjarnason og Einir frá Enni 7,23
14.Haukur Bjarnason og Ísar frá Skáney 7,13
15.-16.Guðmar Þór Pétursson og Ástarpungur frá Staðarhúsum 7,00
15.-16.Þorsteinn Björn Einarsson og Fannar frá Hafsteinsstöðum 7,00
17.Ólöf Rún Guðmundsdóttir og Snót frá Laugardælum 6,93
18.Vera Evi Schneiderchen og Ramóna frá Hólshúsum 6,87
19.-20. Sigrún Rós Helgadóttir og Týr frá Jarðbrú 6,80
19.-20. Elvar Logi Friðriksson og Griffla frá Grafarkoti 6,80
21.Elvar Einarsson og Muni frá Syðra-Skörðugili 6,70
22.Agnar Þór Magnússon og Þjóstur frá Hesti 6,47
23.Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Brimdís frá Efri-Fitjum 6,43
24.Daníel Gunnarsson og Strákur frá Miðsitju 5,43

Hér fyrir neðan má finna sundurliðun og niðurstöður kvöldsins: https://1drv.ms/x/s!AnGr0x7wlHQWg984Heo-3sgRa0HlEA
Dómarar kvöldsins voru:
Hekla Katharína Kristinsdóttir
Guðmundur Björgvinsson
Atli Guðmundsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link