Michel Becker á Íslandi í vetur

  • 14. janúar 2012
  • Fréttir
Michel Becker á Íslandi í vetur

Í tengslum við frétt um friðun franskrar reiðlist hjá UNESCO finnst okkur rétt að taka það fram að reiðkennarinn og þjáfarinn Michel Becker verður staddur á Íslandi í vetur.

Michel hefur alltaf unnið með íslenska hesta en hefur einnig lært á stórum hestum meðal annars farið í gegnum þriggja ára nám hjá  Philippe Karl, virtum knapa í Cadre Noir við Franska reiðskólann till margra ára. Þegar Philippe Karl hætti sem knapi í Cadre Noir stofnaði hann Skóla Léttleikans og þá byrjaði Michel einnig að læra hjá honum. Michel hefur undanfarin ár unnið að því að aðlaga þessum hugmyndafræðum að íslenskum hestum en hann kallar sjálfan sig „hinn sífellt leitandi knapa“ og á þá við leitina að hinni hestvænu leið að árangri.

Eiðfaxi birti viðtal við Michel í vor og má lesa það hér.

Michel kemur til Íslands helgina 28. janúar og verður fram á sumar. Hann mun vinna við þjálfun og kennslu og þeir sem hafa áhuga á kennslu mega hafa samband við Petru í síma 892 1340 eða á email [email protected]. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link