Mídas frá Kaldbak seldur
Hópur manna undir forystu Hafliða Halldórssonar hefur fest kaup á stóðhestinum Mídasi frá Kaldbaka, eða öllu heldur hlutafélaginu Sólroða ehf., sem var stofnað um hestinn á sínum tíma. Samkomulag hefur verið gert um kaupin, en ekki verður gengið formlega frá þeim fyrr en hesturinn hefur farið í heilbrigðisskoðun síðar í dag.
Hafliði segir að hugmyndin hafi komið frá sér en stærsti hluthafi í hestinum verði Kristján Ríkharðsson. Að auki séu nokkrir áhugasamir hestamenn og ræktendur í hópnum. Þar á meðal er Sigurður Sigurðarson á Þjóðólfshaga, sem að líkindum tekur við þjálfun á hestinum.
„Ég sé þennan hest fyrir mér sem sterkan keppnishest í tölti og fjórgangi og tel að hann muni verða styrkur fyrir landsliðið, annað hvort núna eða þá í Berlín 2013,“ segir Hafliði. „Marmiðið hjá mér er ekki að eignast sem stærstan hlut í hestinum, enda eru hestar í þessum gæðaflokki ekki falir á því verði að líklegt sé að menn hagnist á kaupunum. En einhverjir verða að gera eitthvað í þessari kyrrstöðu sem allt er að drepa,“ segir hinn öflugi hrossabóndi Hafliði Halldórsson á Ármóti. Kaupverðið er ekki uppgefið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH