Miðasala byrjuð
Miðsalan hófst með látum í dag og ljóst er að mikil spenna er fyrir laugardagskvöldinu í Skautahöllinni í Laugardalnum. Miðar fást í Líflandi Lynghálsi, Top Reiter Ögurhvarfi og í verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi. Miðinn kostar kr. 3.500 og jafnframt er hægt að taka snúning með lukkudísunum því happdrættismiðar eru einnig til sölu á kr. 1.000 stk.
Tilboð í miðasölu eru þessi:
- 1 aðgöngumiði + 2 happdrættismiðar = 5.000 kr.
- 6 happdrættismiðar = 5.000 kr.
Happdrættisvinningarnir eru glæsilegir og þakkar landsliðsnefnd þeim er leggja til vinningana kærlega fyrir veglega þátttöku í verkefnum landsliðsins.
- Vinningur: Folatollur undir Jarl frá Árbæjarhjáleigu, gisting á Stracta hótel, 2 miðar á sýningu í Fákaseli og 2 miðar á Landsmót hestamanna á Hellu í sumar
- Vinningur: Folatollur undir Stegg frá Hrísdal, handlyftivagn frá PON, 2 miðar á sýningu í Fákaseli og DVD frá LM2012
- Vinningur: folatollur undir Daggar frá Einhamri, gjafabréf á Humarhúsið, 2 miðar á sýningu í Fákaseli og DVD frá LM2012
Rétt er að benda á að vert er að tryggja sér miða hið fyrsta þar sem oftar en ekki hefur selst upp á þennan magnaða viðburð!
Húsið opnar 19:30 og keppnin hefst kl. 20:00.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH