Á fréttavef RÚV kemur fram að nú þegar eru seldir yfir þúsund miðar á Landsmót hestamanna á Hólum í sumar.
Forsala er í fullum gangi en Lárus Ástmar Hannesson, formaður Landssambands Hestamannafélaga, segir að salan fari töluvert betur af stað en á fyrri mótum. „Mjög góður gangur á forsölu miða á landsmótið 2016. Búið er að selja um 900 miða en 60 miðar seldust í gær, 16. desember. Um 30% seljast til erlendra gesta. Verð vikupassa er til áramóta 11,900 en hækkar þá í 15.900. Það er því til mikils að vinna. Slóðin hér er beint inní miðasöluna.“ segir Lárus Hannesson á facebook síðu sinni.