Miðasala hafin á Icehorse Festival
Miðasala er hafin á Icehorse Festival sem er stærsta innanhús WR keppni á íslenska hestinum. Mótið fer fram í Messecenter í Herning í Danmörku dagana 7. – 10. apríl 2022.
Þetta er stór viðburður með yfir 280 knöpum sem munu etja kappi saman en keppt verður í íþróttakeppni. Á staðnum er einnig stórt sýningarsvæði þar sem mikið úrval sýnenda verða með alls kyns búnað fyrir þig og hestinn þinn. Einnig er stóðhestasýning, boðið verður upp á Futurity flokka fyrir yngri hrossin og margt, margt fleira.
Hægt er að kaupa miða HÉR en í desember verður boðið upp á 10% afslátt af miðaverði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH