Miðasölu að ljúka
Nú fer hver að verða síðastur að krækja sér í miða á uppskeruhátíð hestamanna í Gullhömrum á laugardaginn! Miðasölu lýkur kl. 18:00 miðvikudaginn 4. nóvember.
· Þriggja rétta máltíð
· Knapar heiðraðir
· Heiðursverðlaun LH
· Landslið Íslands
· Annáll í boði Gísla Einarssonar úr Landanum
· Kynning á landsmóti hestamanna 2016
· Hrímnir kvartett skemmtir gestum
· Hreimur og hljómsveit hússins
Matseðill:
Humarsúpa með ristuðum humarhölum og nýbökuðu brauði
Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu
Vanilluís Gelato með súkkulaði og Oreokurli
Miðar afhentir 5. – 6. nóvember milli kl. 9:00-15:00 eða við innganginn 7. nóvember.
Miðasala: Banki 301-26-14129, kt. 660304-2580. Verð 9600 kr.
Til að einfalda Gullhömrum vinnuna þarf að vera alveg á hreinu hver á að sitja við hvaða borð ef sérstakar óskir eru um borð. Gott er ef einn er skráður fyrir borðinu og nafn þess aðila tekið fram í skýringum þegar millifært er. Borðapöntun er staðfest með greiðslukvittun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands