Miði á Landsmót hestamanna 2022 í jólapakkann!
Hvernig verður dagskrá mótsins byggð upp?
Mótið hefst á sunnudegi með forkeppni barna og unglinga í gæðingakeppni og kynbótadómum. Dagana þar á eftir heldur veislan áfram og nær hápunkti á fimmtudegi, föstudegi og laugardegi.
Verða einhverjar nýjungar?
Já, það verða sko nýjungar! Á Landsmóti hestamanna 2022 verður öllum bestu hrossum landsins boðið að taka þátt hvort sem það er í öllum flokkum gæðingakeppni eða fimmgang, fjórgang, gæðingaskeiði og slaktaumatölti í meistaraflokk. Tímagreinar í skeiði verða á sínum stað ásamt kynbótahrossum.
Af hverju endar formleg dagskrá á laugardegi?
Vegna þess að við erum að búa til skemmtilegasta Landsmót allra tíma! Við endum mótið með glæsilegustu hestum landsins og þéttsetinni brekku og endum svo á magnaðri tónlistarveislu sem nánar verður auglýst þegar nær dregur.
Á Landsmóti hestamanna 2022 má búast við gríðarlega flottri keppni í öllum flokkum! Fremstu tónlistarmenn landsins munu koma fram, markaðstjöldin á sínum stað, fjölbreyttur matur og stemmingin frábær!
Þeir sem eiga miða frá viðburðinum sem var frestað 2020 geta náð í endurnýjaða miða í gegnum tix.is, þeir sem keyptu útprentaða miða þurfa ekkert að viðhafast heldur mæta bara á viðburðinn og taka þátt í gleðinni! Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband á [email protected].
Tjaldsvæði fara í sölu þegar nær dregur viðburði.
Sjáumst á Hellu 2022!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH