Á miðpunkti í Mekku

  • 3. maí 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Stefnir í stórsýningu kynbótahrossa á Selfossi

Vel á þriðja hundrað hrossa er þegar skráð á kynbótasýningu á Selfossi, sem haldin verður 14. til 25. maí. Síðasti skráningardagur er á morgun, föstudaginn 4. maí, og búist er við að fjöldi hrossa geti jafnvel tvöfaldast. Hámarksfjöldi á sýninguna er 490 hross miðað við tvöfalt dómaragengi og tvær vinnuvikur.

Tilraun var gerð með kynbótasýningu á Selfossi í fyrra og tókst hún vel og féll í kramið hjá ræktendum og sýnendum. Skiptir þar sköpum ný reiðhöll Sleipnis á Selfossi, sem jafnar aðstöðu svæðisins við Sörlastaði og Gaddstaðaflatir, sem hafa verið vinsælustu sýningarstaðirnir.

Skráning á kynbótasýningu á Sörlastöðum, 10. til 11. maí, er hins vegar ekki nema svipur hjá sjón, en til stóð að hún hæfist 7. maí. Hún verður því aðeins tveggja daga sýning að þessu sinni. Um fimmtíu hross eru skráð og þar af eru allmmörg unghross sem eingöngu fara í sköpulagsdóm. Ástæðan er rakin til tímasetningarinnar, en flestum þykir of snemmt að hefja kynbótasýningar fyrir miðjan maí. Einnig er klárt að staðsetningin skiptir máli. Selfoss er að segja má á miðpunkti í Mekku hestamennskunnar, sem er Suður- og Suðvesturland. Kynbótasýning á Gaddstaðaflötum er fyrirhuguð 29. maí til 8. júní. Kynbótasýning í Eyjafirði er fyrirhuguð 14. til 18. maí.

Fagráð í hrossarækt samþykkti á fundi sínum í desember 2011 eftirfarandi drög að sýningaráætlun kynbótadóma árið 2012, sem getur tekið breytingum á tímabilinu:

20.4 – 21.4 Skagafjörður
7.5 – 11.5 Hafnarfjörður (Tekið við skráningum í síma 480 1800 dagana 23.-27. apríl 2012)
14.5 – 18.5 Eyjafjörður
14.5 – 25.5 Selfoss (Tekið við skráningum í síma 480 1800 dagana 2.-4. maí 2012)
21.5 – 25.5 Blönduós
28.5 – 1.6 Skagafjörður
29.5 Hornafjörður (Tekið við skráningum í síma 470-8088 / 864 6487 dagana 21.og 22. maí 2012)
30.5 – 31.5 Fljótsdalshérað
29.5 – 8.6 Hella (Tekið við skráningum í síma 480 1800 dagana 15.-18. maí 2012)
4.6 – 8.6 Eyjafjörður
4.6 – 8.6 Borgarfjörður
25.6 – 1.7 Landsmót
7.8 – 10.8 Húnavatnssýslur
7.8 – 10.8 Borgarfjörður
13.8 – 17.8 Skagafjörður
13.8 – 24.8 Hella
20.8 – 24.8 Eyjafjörður

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link