Mikið að gera hjá Funamönnum
Mikið er að gera hjá Funamönnum þessa stundina. Fjöldi félagsmanna mætti á Melgerðismela nýliðna helgi og vann að ýmsum umhverfismálum. Farið var í almenna tiltekt kringum hesthús og félagsheimili. Nær allt grænt tréverk var lagfært eftir þörfum og málað. Gengið var frá nýju gleri og listum í stóra salnum og unnið að lagfæringu rétta við norðurhólf.
Á fjórða tug manna mættu í grill og reiðtúr um kvöldið í frábæru veðri og áttu notalega kvöldstund saman. Á sunnudeginum reið síðan stór hópur frá Melgerðismelum í Saurbæjarkirkju og fóru í heimilislega messu undir stjórn Hannesar Blandon. Afkomendur Daníels og Gunnhildar gáfu kirkjunni altarisdúk saumaðan af Ingu Sigrúnu Ólafsdóttur.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni