Mikið fjör hjá okkur strákunum í Hólminum

  • 24. mars 2021
  • Fréttir

Lárus Ástmar Hannesson

Lárus Ástmar Hannesson í viðtali í Eiðfaxa Vetur

Eiðfaxi Vetur er nú farinn í prent, stútfullur af áhugaverðu efni eins og venjulega. Í Eiðfaxa Vetur má m.a. finna viðtal við Lárus Ástmar Hannesson, fyrrverandi formann LH þar sem hann rifjar m.a. upp sín fyrstu ár í hestamennskunni í Stykkishólmi. Þar segir hann m.a:

„Það var mikið fjör hjá okkur strákunum í Hólminum og við byrjum á svipuðum tíma í hestamennskunni og erum enn að brölta í þessu. Þarna var Alli frændi minn Hrafnkelsson, Alli blindi eins og margir þekkja hann. Hann er glerharður tamningamaður og mikil keppnisknapi á sínum tíma.
Guðmundur Bæringsson sem hefur um árabil verið bústjóri og tamningamaður á Árbæ. Stórmagnaður verkmaður hann Gummi og með albestu tamningarmönnum sem ég þekki.
Gunnar Sturluson formaður Feif, lögmaður og hrossaræktandi var í þessum hópi. Eldhugi í hestamennsku og því sem tengist starfinu.
Eysteinn Leifsson var mikill krúttpinni á þessum árum og er enn. Hann sniglaðist í kringum okkur þangað til hann flutti með foreldrum sínum suður í Mosfellsbæinn. Mikill eðaldrengur hann Eysteinn og einn stærsti útflytjandi á hestum í dag. Leifur pabbi hans var öflugasti ræktunarmaðurinn á svæðinu og eru ættbogar hrossanna hans enn að gera það gott á svæðinu og víðar.“

Eiðfaxi Vetur ætti að berast áskrifendum fyrir páska auk þess að vera til sölu í öllum helstu hestavöruverslunum landsins. Tryggðu þér þína áskrift hér.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link