Mikið tap á kynbótasýningum
Í gær var einn af fundum hringferðar fagráðs í hrossarækt haldinn í Fákaseli í Ölfusi. Þar fluttu Sveinn Steinarsson formaður fagráðs, Gunnfríður Elín ábyrgðarmaður hrossaræktarinnar innan RML og Haraldur Þórarinsson formaður LH erindi.
Meðal þess sem fram kom í máli Gunnfríðar þá mun sýningargjald kynbótahrossa hækka í 20.500 kr fyrir fullnaðardóm. Í rökstuðningi fyrir hækkuninni kom meðal annars fram að mikill halli hafi verið á rekstri kynbótasýninga á fyrsta rekstrarári kynbótasýninga á vegum fyrirtækisins.
Þegar halla sýninganna er deilt niður á sýnd hross á árinu kemur í ljós að tap á hvert sýnt hross er um 5000 kr. Mestur hallinn var á kynbótasýningum Fjórðungsmótanna, en samkvæmt heimildum Eiðfaxa var hallinn á FM Austurlands á Fornustekkum hátt í 100 þúsund á hvert hross sem þar var sýnt. Einnig var mikill halli á sýningum á FM Vesturlands en þó var hann talsvert minni en hallinn fyrir austan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH