Mikið um dýrðir á MEM 2022

  • 7. ágúst 2022
  • Fréttir

Mið-Evrópumótið stendur yfir þessa dagana og er haldið á Gestüt Hrafnsholt rétt fyrir utan Hannover í Þýskalandi.  Umgjörðin er öll eins og best verður á kosið bæði fyrir keppendur og gesti enda er gestgjafinn Herbert „Kóki“ Ólason ekki þekktur fyrir annað en að hafa allt uppá 10.

 

Alls taka keppendur frá 10 löndum þátt á mótinu. Í upphafi viku var 36°C hiti á svæðinu en hefur sem betur fer lækkað og er um 25°C hiti núna.

Lisa Drath og Kjalar frá Strandarhjáleigu eru efst í Tölti T1.

Í Slaktaumatölti T2 eru efstar og jafnar þær Jolly Schrenk á Glæsir von Gut Wertheim og Lisa Staubli á Viðju frá Feti.

Frauke Schenzel leiðir í Fjórgangi V1 á Jódísi vom Kronshof.

Í Fimmgangi F1 er efstur Pierre Sandsten Hoyos á Búa frá Húsavík.

Vicky Eggertsson er sigurvegari í Gæðingaskeiði PP1 á Tandra frá Árgerði með einkunina 8,58

250 metra skeið sigraði Steffi Plattner á Ísleifi vom Lipperthof.

150 metra skeið sigraði Horst Klinghart á Ánægju vom Lixhof.

 

Samanlagður sigurvegari í Fimmgangsgreinum (F1, T2, PP1) er Lisa Drath á Byr frá Strandarhjáleigu. Keppni í samanlögðum fjórgangsgreinum (T1, V1) sigraði Frauke Schenzel á Jódísi vom Kronshof.

 


Sviss er sigurvegari the EYJA team five-gait. Gripur sem veittur er því landi sem setur saman besta fimmgangsprógrammið með fimm hestum og knöpum.

 

 

Úrslit fara fram á morgun sunnudag.

MEM 2022 – Tölt T1
1. Lisa Drath – Kjalar frá Strandarhjáleigu – 8,43
2. Frauke Schenzel – Jódís vom Kronshof – 8,37
3. Veronika Kremmer – Ísbjörn vom Vindstaðir – 8,10
4. Karly Zingsheim – Dagur vom Forstwald – 7,87
5. Teresa Schmelter – Sprengja frá Ketilsstöðum – 7,73
5. Stefan Schenzel – Mökkur frá Flagbjarnarholti – 7,73
7. Johanna Beuk – Mía frá Flagbjarnarholti – 7,70
8. Irene Reber – Þokki frá Efstu-Grund – 7,67
8. Lena Maxheimer – Abel fra Nordal – 7,67
10. Nicole Rubel – Elvis vom Hirtenhof – 7,50

MEM 2022 – Tölt T2
1. Jolly Schrenk – Glæsir von Gut Wertheim – 7,97
1. Lisa Staubli – Viðja frá Feti – 7,97
3. Jolly Schrenk – Smáralind vom Hegebusch – 7,90
4. Lucie Leuze – Valsi vom Hrafnsholt – 7,67
5. Frauke Schenzel – Njála vom Kronshof – 7,60
6. Susanne Birgisson – Króna von der Hartmühle – 7,53
7. Silke Feuchthofen – Fagur vom Almetal – 7,50
8. Oliver Egli – Hákon frá Báreksstöðum – 7,47
9. Lisa Drath – Byr frá Strandarhjáleigu – 7,43
10. Jin Xing Wan van Werven – Kolbeinn fra Jespersgaarde – 7,40
10. Olivia Ritschel – Arion von der Norderheide – 7,40
10. Mara Daniella Staubli – Gambur frá Engjavatni – 7,40

MEM 2022 – Fjórgangur V1
1. Frauke Schenzel – Jódís vom Kronshof – 7.83
2. Karly Zingsheim – Dagur vom Forstwald – 7.57
3. Lisa Drath – Kjalar frá Strandarhjáleigu – 7.53
4. Jolly Schrenk – Smáralind vom Hegebusch – 7.27
5. Andrea Weiss-Balz – Baldi frá Feti – 7.17
5. Lilja Thordarson – Hjúpur frá Herríðarhóli – 7.17
5. Irene Reber – Þokki frá Efstu-Grund – 7.17
8. Johanna Beuk – Mía frá Flagbjarnarholti – 7.13
9. Lucie Leuze – Valsi vom Hrafnsholt – 7.07
9. Susanne Birgisson – Króna von der Hartmühle – 7.07
9. Lena Maxheimer – Abel fra Nordal – 7.07

MEM 2022 – Fimmgangur F1
1. Pierre Hoyos – Búi frá Húsavík – 7,70
2. Vicky Eggertsson – Gandur vom Sperlinghof – 7,67
3. Lisa Drath – Byr frá Strandarhjáleigu – 7,53
4. Svenja Kohl – Kraftur frá Steinnesi – 7,10
4. Frauke Schenzel – Njála vom Kronshof – 7,10
6. Silvia Ochsenreiter-Egli – Heljar frá Stóra-Hofi – 7,07
7. Johanna Beuk – Elja frá Sauðholti 2 – 7,03
8. Gerrit Venebrügge – Prins Valíant von Godemoor – 7,00
9. Marilyn Thoma – Daggar frá Einhamri 2 – 6,93
10. Piet Hoyos – Brynjar frá Bakkakoti – 6,90

MEM 2022 – Gæðingaskeið PP1
1. Vicky Eggertsson – Tandri frá Árgerði – 8,58
2. Beggi Eggertsson – Dynfari frá Steinnesi – 8,00
3. Alexander Fedorov – Hrólfur frá Hafnarfirði – 7,42
4. Lisa Drath – Byr frá Strandarhjáleigu – 7,29
4. Livio Fruci – Jóhannes Kjarval frá Hala – 7,29
6. Julia Hehlert-Friedrich – Urð frá Skriðu – 7,25
7. Anna-Lisa Zingsheim – Örn frá Brimnesi – 7,17
7. Antonia Mehlitz – Ópal fra Teland – 7,17
9. Gerrit Venebrügge – Prins Valíant von Godemoor – 7,13
10. Helen Klaas – Víf van ´t Groote Veld – 6,96

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link