Mikil óánægja knapa

  • 11. júní 2013
  • Fréttir
Mikil óánægja knapa

Mikil óánægja er meðal knapa um ákvörðun mótstjórnar Gullmótsins um að fresta úrtökunni til morguns.

Í yfirlýsingunni sem gefinver út þá þurkast allur árangur mótsins í dag út og byrjað verður upp á nýtt í fyrramálið. Þeir sem illa gekk hjá í dag eru augljóslega ánægðir með þessa ákvörðun, en þeir sem gerðu það gott í dag eru margir hverjir ósáttir.

Á fundinum kom einnig fram tillaga frá Huldu Geirsdóttur að knapar gætu ráðið sjálfir hvort þeir vildu að árangur dagsins í dag stæði eða ekki. Lögfróðir segja engar reglur ná yfir atvik sem þetta og sumir segja að ekki sé hægt að ógilda árangur sem náðist í löglegu móti og allir hafi setið við sama borð hvað aðstæður varðar.

Sumir knapar eiga að sýna kynbótahross á Miðfossum á morgun en búið  er að hafa samband við fulltrúa RML og verið er að vinna í að finna lausn á þeim árekstrum sem orðið geta vegna þessa.

Mótsstjórn Gullmótsins mun senda frá sér tilkynningu um leið og málin skýrast og birtum við hana um leið og hún berst.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link