Norðurlandamót Mikil og skemmtileg vinna við að mynda þennan flotta hóp

  • 30. júlí 2026
  • Fréttir

Sigvaldi og Sigurbjörn Eiríksson formaður landsliðsnefndar

U-21 landsliðið klárt í slaginn fyrir NM

Sigvaldi Lárus Guðmundsson, landsliðsþjálfari U-21 árs í hestaíþróttum, er nú á leiðinni með hóp frábærra ungra knapa á Norðurlandamótið (NM) sem haldið verður á Margrétarhofi í Svíþjóð. Undirbúningurinn stendur nú sem hæst og tilhlökkunin er farin að gera vart við sig.

„Líðanin er bara furðugóð og ég hlakka til að takast á við þetta verkefni. Auðvitað fær maður alltaf fiðring í magann þegar maður mætir á mótstað, annað væri held ég óeðlilegt,“ segir Sigvaldi.

Púsluspil sem gekk upp

Alls eru fjórtán knapar í hópnum sem keppa í unglinga- og ungmennaflokki á mótinu. Sumir flytja út hesta frá Íslandi sem þeir gjörþekkja, á meðan aðrir mæta til leiks á lánshestum ytra. Aðspurður hvort það hafi verið mál að finna hentug hross og fá knapa til að taka sín eigin hross með á mótið, segir Sigvaldi það eiga sér langan aðdraganda.
„Það er margt sem spilar inn í til þess að þetta gangi allt upp og ekkert sjálfsagt við það, meðal annars að ákveða að taka svona öfluga hesta með sér á NM frá Íslandi. Ég fann þó strax fyrir miklum hug í mínu fólki að ætla sér að láta reyna á það og stefna á NM. Auðvitað hafa hlutirnir gengið mishratt fyrir sig, bæði varðandi sölu á hestum frá Íslandi og það að finna sér lánshest erlendis, en einhvern veginn hefur þetta púslast allt saman og að lokum varð þetta niðurstaðan á hópnum.“

Ungmennin sem keppa fyrir hönd Íslands eru engir nýgræðingar, heldur þaulreyndir keppnisknapar og margir hverjir verðlaunahafar á stórmótum.
„Ég hef miklar væntingar fyrir þetta mót og mikla trú á mínum hóp og þeirra hestum,“ segir Sigvaldi jafnframt. „Auðvitað vitum við að stór hluti yngra liðsins er að fá lánaða hesta erlendis og þekkir þá því ekki eins mikið og þau sem eru að koma með hestana sína frá Íslandi. En þó krakkarnir séu ungir er mikil reynsla í hópnum sem á eftir að standa með þeim þegar á hólminn er komið. Ég hlakka því mikið til að takast á við þetta með þeim.“

Norðurlandamótið hefst í næstu viku og stendur yfir frá 4. til 9. ágúst. Mörg verkefni liggja fyrir hjá landsliðsþjálfaranum fram að fyrsta keppnisdegi.
„Við erum nýbúin að klára lokaathugun á hestunum fyrir útflutning og þeir hófu sitt ferðalag seinnipartinn á mánudag og flugu af stað. Næst á dagskrá er að pakka niður í tösku, skipuleggja æfingatíma á mótsstað, sjá til þess að aðbúnaður hesta og knapa sé í lagi og vera til staðar fyrir knapana. Svo er eflaust margt fleira sem mun koma upp. En síðan má heldur ekki gleyma að njóta vegferðarinnar og þess sem við erum að fara að gera þarna úti.“

Ljóst er að mikið hefur verið lagt í undirbúninginn. „Þetta er búin að vera mikil og skemmtileg vinna við að mynda þennan flotta hóp sem er að fara að mæta á Margrétarhof til að láta þar að sér kveða. Ég er farinn að hlakka mikið til að hefja þar leik,“ segir Sigvaldi að lokum.

Rétt er að geta þess að Norðurlandamótið verður í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, þar sem áskrifendur geta fylgst grannt með framgangi íslenska landsliðsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link