Miklir notkunarmöguleikar fylgja nýstárlegum brokkspírum
Þekkingarleit, framsýni og forvitni fylgja mörgum þeim er aðhyllast hestamennsku en óhætt er að segja að þessi öfl séu forsenda framfara í reiðmennsku, ræktun og hestamennsku almennt.
Telma Tómasson er ein af þeim sem fær hugmyndir og hikar ekki við að framkvæma þær, lítist henni svo á að þær nýtist henni og öðrum til þjálfunar á íslenska hestinum. Það nýjasta úr hennar hugarheimi eru nýstárlegar hestvænar brokkspírur sem hún hefur nú þegar látið búa til fyrir sig í samvinnu við fyrirtækið Svampur.is, sem er í eigu hjónanna Sveins Steinarssonar og Jennýjar Dagbjartar Eiríksdóttur hrossabænda á Litlalandi í Ölfusi.
Telma segist engan veginn vera að finna upp hjólið, en hefur aðlagað sínar brokkspírur, þannig að notkunarmöguleikar séu fleiri en með aðrar sambærilegar á markaði erlendis. Hún segir brokkspírurnar mjúkar en samt stabílar, notkun þeirra bæti spyrnukraft, styrki yfirlínu og svif og litasamsetningin auki jafnframt athygli hestsins. Þá sé hægt að festa þær saman og púsla þannig saman þrautabrautir og ýmis form sem fari eftir ástundun eða þjálfunarmarkmiði á hverjum tíma. Fyrstu eintökin segir hún að lofi góðu en bæði þjálfari og hestur þurfi að læra að nota þær rétt.
,,Mér fannst mikilvægt að framleiðslan væri íslensk og heiðurshjónin kennd við Litlaland sem eiga svampur.is voru ekki lengi að bregðast við. Aðeins tók 10 daga frá því ég nefndi hugmyndina við þau þar til fyrstu brokkspírurnar litu dagsins ljós. Algerir snillingar sem geta búið til allt milli himins og jarðar úr svampi og gæðin eru frábær,” segir Telma, ánægð með samstarfið.
Blaðamönnum Eiðfaxa lék forvitni á að fræðast meira um brokkspírurnar, hugmyndina á bak við þær og fleira það sem Telma hafði um þetta skemmtilega framtak að segja. Það viðtal má horfa á í spilaranum hér að ofan má
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH