Misjafnt hafast hestar að á aðventunni-
Hann Þorgeir Guðlaugsson í Hollandi benti vini sínum Eiðfaxa á myndirnar sem fylgja þessum texta. Hesturinn okkar er víða og finnst orðið í flestum heimsálfum.
Strandmyndirnar eru frá henni Amy Haldane í Ástralíu og svona er umhverfið þar á aðventunni, vetrarmyndirnar eru hinsvegar frá Póllandi. Hesturinn þrífst jafnvel á báðum stöðunum, enda aðlögunarhæfni Íslenska hestsins með eindæmum. Því til vitnis er hin frábæra frammistaða sem hann sýndi í The great American horserace sem haldin var árið 1976 , og riðið var þvert yfir Ameríku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári