„Mjög sætur sigur“ – Védís Huld Íslandsmeistari í gæðingaskeiði
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég næ í titil í gæðingaskeið og er þetta því mjög sætur sigur, sérstaklega af því þetta er svo tæknilega erfið grein. Ég náði líka loksins að láta allt heppnast á Hrafnhettu í báðum sprettum og því er þetta mjög sætur sigur.“ Segir Védís Huld Sigurðardóttir nýkrýndur Íslandsmeistari í gæðingaskeiði unglinga.
En hvers vegna er gæðingaskeið svo erfið grein að mati Védísar? „Maður þarf að hafa mikla stjórn á hrossinu sínu og geta kallað fram bæði kraft og yfirvegun. Það þarf allt að púslast saman í tveimur sprettum. Aðdragandinn þarf að vera góður, niðurtakan mjúk og átakalaus og svo að láta skeiða, helst hratt. Spennustigið verður svo að vera rétt svo maður nái líka að hægja fallega niður. Hrafnhetta hentar vel í gæðingaskeið því hún er algjör gæðingur.“
Védísi hefur gengið vel á mótinu til þessa. „Ég er mjög sátt við árangur minn á mótinu til þessa. Nú er bara að halda áfram að einbeita sér og fara að undirbúa sig fyrir næstu greinar.“ Segir þessi flotta hestastelpa að lokum við blaðamann Eiðfaxa um leið og hann óskar henni til hamingju með árangurinn.
Hér fyrir neðan má sjá heildarniðurstöðu í gæðingaskeiði. Kristján Árni Birgisson nældi sér í silfur á Máney frá Kanastöðum með 7,13 í einkunn og Sigurður Baldur Ríkharðsson hlaut brons á Hrafnkötlu frá Ólafsbergi með 7,08 í einkunn.
| Gæðingaskeið PP1 | |||
| Unglingaflokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnhetta frá Hvannstóði | 7,67 |
| 2 | Kristján Árni Birgisson | Máney frá Kanastöðum | 7,13 |
| 3 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Hrafnkatla frá Ólafsbergi | 7,08 |
| 4 | Matthías Sigurðsson | Tign frá Fornusöndum | 6,88 |
| 5 | Sigurður Steingrímsson | Viðja frá Auðsholtshjáleigu | 6,88 |
| 6 | Jón Ársæll Bergmann | Valka frá Íbishóli | 6,67 |
| 7 | Þórey Þula Helgadóttir | Sólon frá Völlum | 6,63 |
| 8 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake | Bragi frá Skáney | 6,29 |
| 9 | Embla Lind Ragnarsdóttir | List frá Svalbarða | 6,00 |
| 10 | Þórey Þula Helgadóttir | Þótti frá Hvammi I | 5,79 |
| 11 | Hekla Rán Hannesdóttir | Halla frá Kverná | 5,46 |
| 12 | Sigurbjörg Helgadóttir | Hörpurós frá Helgatúni | 5,46 |
| 13 | Aðalbjörg Emma Maack | Návist frá Lækjamóti | 5,42 |
| 14 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Björk frá Barkarstöðum | 4,33 |
| 15 | Oddur Carl Arason | Teigur frá Ásatúni | 4,17 |
| 16 | Ragnar Snær Viðarsson | Laxnes frá Ekru | 4,13 |
| 17 | Dagur Sigurðarson | Tromma frá Skúfslæk | 3,88 |
| 18 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Snædís frá Forsæti II | 3,58 |
| 19 | Anna María Bjarnadóttir | Höfði frá Bakkakoti | 3,29 |
| 20 | Védís Huld Sigurðardóttir | Eysteinn frá Íbishóli | 3,21 |
| 21 | Signý Sól Snorradóttir | Míla frá Staðartungu | 3,08 |
| 22 | Eva Kærnested | Tign frá Stokkalæk | 3,00 |
| 23 | Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir | Borg frá Borgarholti | 2,25 |
| 24 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | Djarfur frá Flatatungu | 1,75 |
| 25 | Matthías Sigurðsson | Finnur frá Skipaskaga | 1,42 |
| 26 | Guðný Dís Jónsdóttir | Ás frá Eystri-Hól | 0,92 |
| 27 | Auður Karen Auðbjörnsdóttir | Maren frá Vestri-Leirárgörðum | 0,79 |
| 28 | Selma Leifsdóttir | Þula frá Stað | 0,00 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH