Mjölnir frá Hlemmiskeiði á Wiesenhof

  • 15. nóvember 2012
  • Fréttir

Stóðhesturinn Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 hefur verið seldur til Þýskalands.

Stóðhesturinn Mjölnir frá Hlemmiskeiði hefur verið seldur til Þýskalands og mun taka við stöðu Gusts frá Grund á Wiesenhof

Stóðhesturinn Mjölnir frá Hlemmiskeiði heldur til nýrra heimkynna á Wiesenhof í Þýskalandi í dag. Kaupandi er félagið IsiBreed, en hesturinn verður í umsjá hrossaræktarbúsins á Wiesenhof. Mjölnir tekur því væntanlega sæti Gusts frá Grund sem aðal stóðhestur á Wiesenhof, en Gustur féll sem kunnugt er úr hrossasótt nýlega, 24 vetra.

Mjölnir hefur verið með eftirstóttustu stóðhestum landsins síðan hann kom í dóm 4 vetra og var þá hæst dæmdi stóðhestur landsins í þeim verðflokki. Þá hlaut hann 8,40 í aðaleinkunn, þar af 8,53 fyrir sköpulag og 8,31 fyrir kosti. Hæsta einkunn hlaut hann á héraðssýningu á Gaddstaðaflötum í vor, 8,50 í aðaleinkunn, þar af 8,51 fyrir sköpulag og 8,49 fyrir kosti. Ekki spillir liturinn fyrir, rauðblesóttur, glófextur.

Ræktendur Mjölnis eru Árni Svavarsson og Inga Birna Ingólfsdóttir á Hlemmiskeiði 3 og hefur hesturinn verið flaggskip hrossaræktarbús þeirra fram á þennan dag. Faðir Mjölnis er Krákur frá Blesastöðum, sem einnig er einn af eftirsóttustu stóðhestum landsins, og móðir Blika frá Nýjabæ í Borgarfirði, úr ræktun Ólafar Guðbrandsdóttur í Nýjabæ.

Árni og Inga Birna segja að það hafi vissulega verið erfið ákvörðun að selja hestinn og mikil eftirsjá að honum. Hann hafi hins vegar verið búinn að þjóna þeirra hryssum að því marki sem hæfilegt er hverju hrossaræktarbúi og einnig sé allmikið til undan honum hér á landi.

Þau hjónin vildu ekki tjá sig um söluverðið, en sögðu að það væri ásættanlegt. Alkunna er að stóðhestar í þessum gæðaflokki hafa verið seldir á 20 til 30 milljónir króna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link