Mónika frá Miðfelli í Danaveldi

  • 2. október 2012
  • Fréttir
Mónika frá Miðfelli, Stáladóttir frá Kjarri, vakti mikla athygli á Landsmótinu í sumar. Hún var seld til Danmerkur.

Mónika frá Miðfelli 5 hefur verið seld til Danmerkur. Hún vakti mikla athygli á Landsmótinu í sumar og fékk meðal annars 9,5 fyrir tölt sem er mjög óvenjulegt hjá 4. vetra trippi.  Hún hlaut 8,15 í aðaleinkunn, klárhryssa. Mónika er undan Stála frá Kjarri, Galsasyni frá Sauðárkróki og  1. verðlauna hryssunni Aldvöku frá Miðfelli 5 sem er undan Andvara frá Ey.  Ræktandi er Magnús Gunnlaugsson í Miðfelli í Hrunamannahreppi. Sýnandi á LM2012 var Sigurður Óli Kristinsson. Nýjir eigendur í Danmörku hafa þegar fengið hryssuna til sín. Myndina tók Jón Björnsson á LM2012.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link