Mótadagar og liðskipan Uppsveitadeildar 2012
Blásið verður til leiks í Uppsveitadeildinni þann 27. janúar nk. Hestamannafélögin Smári, Logi og Trausti standa að mótaröðinni sem nú verður haldinn í þriðja sinn. Sjö þriggja manna lið munu þá etja kappi í fimm keppnisgreinum.
-
27 janúar SMALI
-
24 febrúar FJÓRGANGUR
-
23 mars FIMMGANGUR
-
20 apríl TÖLT/SKEIÐ
Á kynningarfundi Uppsveitadeildarinn sl. fimmtudag var einnig dregið í lið, en þau verða skipuð eftirfarandi knöpum (með fyrirvara um breytingar):
Þá mun vera keppt í Uppsveitadeild æskunar samhliða, en hún var haldin í fyrsta skipti í fyrra og þótti heppnast með prýði. Þá etja kappi ungir knapar í þremur liðum fyrrnefndra hestamannafélaga.
- 10 mars SMALI
- 31 mars TÖLT/FJÓRGANGUR
- 28 apríl ÞRÍGANGUR/FIMMGANGUR/SKEIÐ
Mótin verða haldnar í reiðhöllinni á Flúðum og búast má við líflegum og spennandi mótum enda gefa uppsveitungar ekkert eftir þegar á hólminn er komið. Fréttir af deildinni má nálgast á heimasíðu hestamannfélagsins Smára.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH