Mótaraðir og Meistaradeildir
Það fer ekki fram hjá neinum að keppnisárið er að hefjast. Hestamannafélögin auglýsa nú fyrstu félagsmót sín og knapar mótaraða undirbúa klára sína fyrir átök vetrarins. Þónokkrar mótaraðir kringum landið hafa notið gífulegra vinsælda meðal hestamanna og er dagskrá þeirra flestra klár. Stutt er í að fjörið hefjist og því er ekki úr vegi að hestamenn hafi keppnisdaga þeirra á hreinu:
Meistaradeildin í hestaíþróttum
Meistaradeildin í hestaíþróttum mun vera haldin í 10 sinn í vetur. Deildin er mótaröð knapa og liða og skiptist í 6 mót sem haldin eru á tveggja vikna fresti, oftast í reiðhöllinn Ingólfshvoli, frá lok janúarmánaðar. Átta lið taka þátt að þessu sinni og skipa 4 knapar hvert lið.
Dagsetningar mótaraðarinnar 2013 verða þessar:
- Fimmtudagur 31 janúar : Fjórgangur
- Fimmtudagur 14 febrúar : Gæðingafimi
- Fimmtudagur 28 febrúar : Fimmgangur
- Fimmtudagur 14 mars : Tölt
- Laugardagur 23 mars : Skeiðgreinar – úti.
- Föstudagur 5 apríl : Slaktaumatölt og skeið – Lokahátíð
Nánari upplýsingar á vefsíðu Meistaradeildar.
Meistaradeild Norðurlands – KS-deildin
Meistaradeild Norðurlands í hestaíþróttum, KS-deildin, verður haldin í sjötta skipti nú í vetur. Mótaröðin fer að venju fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Mótaröðin er einstaklingskeppni milli 18 sterkustu knapa Norðurlands en auk eftirtalinna 12 knapa munu sex tryggja sér þátttöku í sérstakri úrtöku þann 30. Janúar nk.
- Bjarni Jónasson
- Sölvi Sigurðarson
- Mette Mannseth
- Ísólfur Líndal
- Þórarinn Eymundsson
- Ólafur Magnússon
- Tryggvi Björnsson
- Baldvin Ari Guðlaugsson
- Þorbjörn H. Matthíasson
- Fanney D Indriðadóttir
- Elvar Einarsson
- Viðar Bragason
Keppnisdagar KB-mótaraðar 2013 eru:
- 30. janúar – Úrtaka
- 20. febrúar – Fjórgangur
- 6. mars – Fimmgangur
- 20. mars – Tölt
- 10. apríl – Slaktaumatölt og skeið
Nánari upplýsingar um Meistaradeild Norðurlands má nálgast á heimasíðu reiðhallarinnar Svaðastaða.
Húnvetnska liðakeppnin
Þessi skemmtilega mótaröð nýtur sífellt aukinna vinsælda meðal Húnvetnskra hestamanna en hún samanstendur af fjórum mótum sem haldin í reiðhöllinni á Hvammstanga og standa hestamannafélögin Neisti og Þytur að liðakeppninni. Auk þess að vera stigakeppni milli liða eru mótin einnig ætluð hestamönnum af öllum stigum því boðið er upp á flokkaskiptingar eftir reynslu knapa.
Mót Húnvetnsku liðakeppninnar verða:
- 8. febrúar – Fjórgangur
- 23. febrúar – Smali og skeið
- 15. mars – Fimmgangur og tölt T7 í 3. flokki og T3 í unglingaflokki
- 5. apríl – Tölt T3 (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt)
Sjá nánar á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts.
KB mótaröðin
KB mótaröðin saman standa af þremur fjölskylduvænum og skemmtilegum mótum sem haldin eru í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi á vegum hestamannafélagana Faxa og Skugga. Í ár verður keppt í fjórgang, fimmgang, T4, T7, tölti og skeiði í gegnum höllina.
Mótaröðin er með frjálslegu formi. Þó lið og knapar keppi sín á milli í stigakeppni allra móta er keppnin þó opin öllum þeim sem áhuga hafa og getur hver sem er tekið þátt í þeim greinum sem áhugi er fyrir. Ekki er skylda að vera í liði heldur er einnig frjálst að keppa sem einstaklingur. „Lagt er upp með að góður andi ríki yfir mótinu og sem skemmtilegust stemmning nái að myndast í liðunum. Flottir og skemmtilegir og/eða fallegir búningar, góða skapið og stemningin í hverju liði er metið í lok mótaraðarinnar og gríðarleg verðlaun hlýtur það lið sem þykir skara fram úr hvað það varðar,“ segir í tilkynningu á fésbókarsíðu mótaraðarinnar.
KB-mót vetrarins:
- 2. febrúar – fjórgangur,
- 23. febrúar – fimmgangur, T2 og T7-unglingar og börn.
- 16.mars – Tölt/ Skeið í gegnum höllina.
Nánari upplýsingar má nálgast á fyrrnefndri fésbókarsíðu og vefsíðu Faxaborgar.
KEA mótaröðin
Í Top Reiter höllinni á Akureyri hefur verið haldin fjögurra móta keppnisröð í nafni KEA undanfarin ár. Mótaröðin er stigakeppni milli knapa. Keppnisdagar ársins hafa ekki verið gefið út fyrir mótaröðina í ár en upplýsingar um hana má nálgast á heimasíðu hestamannafélagsins Léttis.
Skagfirska mótaröðin
Skagfirska mótaröðin er fjögurra móta keppnisröð sem fer fram í Svaðastaðahöll. Húnhefst að þessu sinni þann 13. febrúar þegar keppt verður í fjórgangi. Mótaröðin er fyrir bæði unga og aldna því keppt er í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og meistaraflokki.
Annað mót verður svo haldið 27. febrúar. Þá verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki. Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti. Þriðja mótið verður haldið þann 13. mars. Ungmenni, áhugamenn og meistarar keppa þá í tölti en börn og unglingar keppa í annað sinn í fjórgangi. Lokamótið verður síðan 3 apríl.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Svaðastaðahallar.
Uppsveitadeildin
Að lokum er rétt að geta hinnar stórskemmtilegu Uppsveitadeildar, sem er fjögurra móta keppnisröð sem hestamannafélögin Smári, Logi og Trausti standa að í reiðhöllinni á Flúðum. Sjö lið og 21 knapi taka þátt í stigakeppni en keppt er í smala, fjórgangi, fimmgangi, tölti og fljúgandi skeiði. Samhliða spreyta sig svo ungir knapar félaganna í Uppsveitadeild æskunnar.
Dagskrá Uppsveitadeildanna hefur enn ekki verið gefin út en upplýsingar má allra jafna nálgast á heimasíðu hestamannafélagsins Loga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH