Mótun laga og reglna til FEIF
Jón Albert Sigurbjörnsson, fyrrverandi formaður LH og varaforseti FEIF, var þingforseti á Landsþingi hestamanna. Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, formaður Loga í Biskupstungum, var formaður keppnisnefndar. Bæði þóttu skeleggir stjórnendur.
Í Hestablaðinu sem kemur út á morgun, fimmtudaginn 25. október, er rætt við þau Jón og Guðrúnu. Jón segir það ekkert annað en þjóðrembu að Íslendingar skuli koma með tillögur um íslenskar sérreglur inn á LH þing. Íslenskir hestamenn verði að sætta sig við að íslenski hesturinn sé ekki lengur þeirra séreign. Mótun laga og reglna ætti að fara fram á vettvangi FEIF og gilda fyrir öll aðildarlöndin.
Guðrún segir karp um keppnisreglur taka allt of mikinn tíma frá þinginu. Nauðsynlegt sé þó að hafa reglur og allir eigi jafnan rétt á að koma með tillögur. Spara megi tíma með því að forvinna þær meira fyrir þing. Guðrún skrifar leiðara í Hestablaðið sem kemur út á morgun, fimmtudaginn 25. október.
Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH