„Munaði litlu að ég myndi klúðra á danska meistaramótinu“

  • 4. ágúst 2024
  • Fréttir
Viðtal við Sigurður Óla Kristinsson og Sys Pilegaard

Þau Sigurður Óli Kristinsson og Sys Pilegaard hafa komið sér vel fyrir á búgarði sínum Stald Sepi sem er í Morud rétt fyrir utan Odense á Fjóni í Danmörku.

“Sys er fædd og uppalin hér rétt hjá og ég flutti hingað út árið 2017. Okkur langaði að eignast okkar eigið og fundum þennan stað. Það sem réði því helst að við völdum hann var að hér eru frábærar útreiðaleiðir en þær finnast ekki betri en á Fjóni. Mér sem Íslendingi finnst nauðsynlegt að hafa góðar útreiðaleiðir og hafa möguleikann á að geta riðið hrossunum fram,” segir Sigurður Óli.

Á staðnum var áður fjós en þegar þau keyptu hafði verið bruni og voru húsin sum illa farin.

“Hér var stórt stálgrindarhús sem var brennt og þurfti að laga nokkrar sperrur, gólfið og þakið. Það voru heilmiklar framkvæmdir. Jörðin er um 24 ha. og er hesthúsið með stjíur fyrir 33 hross. Hér eru líkar nokkur gerði með skjóli svo hægt er að vera með 35 – 40 hross á járnum. Reiðhöllin hjá okkur er síðan 20×50 m.” segir Sigurður Óli en þau eru yfirleitt þrjú sem vinna á tamningastöðinni, hann, Sys og einn annar starfsmaður.

Á leið á Norðurlandamót

Sigurður Óli mun keppa á Norðurlandamótinu en hann er skráður með Fjalladís frá Fornusöndum í gæðingaskeiðið. Fjalladís var hluti af íslenska landsliðinu á síðasta heimsmeistaramóti þar sem hún og þáverandi knapi hennar, Elvar Þormarsson, lönduðu tveimur gullverðlaunum, annað í gæðingaskeiði og hitt í 250 m. skeiði.

“Ég er búinn að ríða henni á tvö mót en við erum að kynnast ennþá. Fyrsta mótið fór fram úr öllum vonum en þá svona sýndi hún mér hvernig átt að gera þetta og ég fékk að vera með. Það munaði litlu að ég myndi klúðra á danska meistaramótinu en ég var fljótur að hugsa og þetta heppnaðist. Seinni spretturinn var mjög góður. Ég lærði mikið af því móti. en eins og ég segi erum við að æfa okkur og þurfum nokkur mót í viðbót til að vera alveg með þetta,” segir Sigurður Óli sem keppir fyrir danska landsliðið. Aðspurður afhverju ekki það íslenska segir hann danska landsliðið henta betur þar sem hann er búsettur í Danmörku.

Sys var Norðurlandameistari í tölti í fyrra á Abel fra Tyrevoldsdal en hún og Abel vöktu mikla athygli og voru eitt sterkasta töltpar heims síðustu ár. Þau enduðu m.a. í 2. sæti á heimsmeistaramótinu í fyrra. Sys er ekki lengur með Abel og er nú að einbeita sér að því að byggja upp nýja keppnishesta.

“Ég hef verið að keppa á fullu síðustu 14-15 árin en núna finnst mér tími vera kominn til þess að byggja upp nýjan keppnishest. Ég er með mörg góð og efnileg hross og ætla taka því rólega og gefa þeim þann tíma sem þau þurfa,” svarar Sys aðspurð hvort hún mæti á Norðurlandamótið í ár.

Færri sýningar sem gerir skipulagið erfiðara

Sigurður Óli og Sys hafa líka verið dugleg að sýna kynbótahross en Sigurður er búinn að sýna níu hross í sumar í Danmörk og Sys tvö.

“Sys er búin að standa sig vel en hún er búin að sýna 100% í fyrstu verðlaun. Þetta er voðalega svipað hér úti og heima þ.e.a.s kerfið er það sama. Munurinn hér og heima er sá að ef eitthvað klikkar á einni sýningu veistu að það er önnur sýning eftir nokkra daga en hér þarftu að bíða að lágmarki sex vikur. Það eru færri sýningar og því þurfa öll hross að vera tilbúin á sama tíma en ekki eins og á Íslandi að þá gastu svolítið metið þetta eftir hendinni út úr húsinu,” segir Sigurður og bætir við að það sé samt mikill kostur að í Danmörku keyrirðu á staðinn og ert þar allann tímann á meðan sýningin stendur yfir en keyrir ekki stöðugt fram og tilbaka eins og tíðkast á Íslandi.

Þau Sys og Sigurður kunna bæði vel við sig í Danmörku og virðist ekkert fararsnið vera á þeim. Það verður spennandi að fylgjast með þeim Sigurði og Fjalladís á Norðurlandamótinu sem hefst á fimmtudaginn, 8. ágúst

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link