Mýkt frá Seljabrekku seld

  • 6. maí 2011
  • Fréttir
Kaupandinn er eigandi Olivers frá Kvistum

Ernir Kristján Snorrason hefur selt gæðingshryssuna Mýkt frá Seljabrekku. Kaupandinn er Gudula Rudbäck, sú sama og keypti stóðhestinn Óliver frá Kvistum í hitteðfyrra.

Mýkt er mikið hestagull, dóttur Hugins frá Haga og Kolfreyju frá Gunnarsholti, Kolfinnsdóttur frá Kjarnholtum. Kolfreyja er alsystir Kolskarar frá Gunnarsholti, ræktunarhryssu Páls Bjarka Pálssonar á Flugumýri II.

Mýkt hlaut 8,48 á Landsmóti 2008 á Hellu. Fyrir sköpulag 8,10 og fyrir kosti 8,73. Hún er með 9,0 fyrir framhluta, tölt, vilja og fegurð. Hún er nú fylfull við Kráki frá Blesastöðum og kastar folaldi undan honum í sumar ef allt fer að óskum. Samkvæmt upplýsingum Hestablaðsins er gert ráð fyrir að hún fari utan í haust.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link