Mynddiskur frá LM2011 til sölu á HM í Austurríki
Mynddiskur með hápunktum LM2011 verður til sölu á HM2011 í Austurríki. Allt mótið verður komið á mynddiska í haust. Öll atriði keppninnar voru tekin upp og sýnd í beinni útsendingu.
Óskar Nikulásson, yfirmaður tökuliðsins, klippti efnið jafnóðum í þeim tilgangi að koma hápunktunum í framleiðslu og dreifingu fyrir heimsmeistaramótið í Austurríki. Það mun takast ef ekkert óvænt kemur upp á. Planið er að mynddiskar af öllu mótinu verði komnir í búðir með haustinu.
Rétt er að minna á að hægt er að kaupa áskrift að öllum upptökum frá mótinu á síðu Landsmóts: www.landsmot.is.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH