Myndir af Opnunarhátíð Landsmóts
Opnunarhátíð Landsmóts er ávallt hátíðlegur viðburður og á því var engin undantekning í ár. Í fallegri kvöldsól riðu um 200 hross með knöpum inn á gæðingavöll Vindheimamela, með Sigur frá Hólabaki og Huldu Gústafsdóttur í fararbroddi og fánaberum íslenska fánans. Fulltrúar allra hestamannafélaga mættu í félagsbúningum riðu í hópum og virtust bæði hross og menn hafa gaman af.
Á meðan á hópreiðinni stóð og ræðumenn kvöldsins tóku til máls fengu ljósmyndarar nóg af gullnum myndatækifærum enda fylgir hér með heill haugur myndir frá sjónarspili opnunarhátíðarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum